Það sem dvelur í þögninni

2.690 kr

Í þessari ættarskáldsögu sækir Ásta Kristrún í sagnabrunninn sem hún er alin upp við til að varpa ljósi á magnað lífshlaup formæðra sinna. Sögusviðið er vítt og breitt um landið – meðal annars á Grenjaðarstað í Aðaldal, Hólmum í Reyðarfirði, Bessastöðum, Arnarfirði, Eyrarbakka og Reykjavík auk þess sem siglt er út fyrir landsteinana.

Fólkið sem fjallað er um var virkt í stjórnmála- og menningarsögu 19. aldarinnar og fram á þá tuttugustu. En í ástar- og  hugsjónabaráttu stígur lífið einatt flókinn dans. Dramatískar sögur dvelja margar í þögninni, því sársaukinn sem mörgum þeirra fylgir hefur verið of erfiður til að horfast í augu við. Með bók sinni leggur höfundur sitt af mörkum til að draga sögu ættliðanna úr þagnarhyl aldanna.

Höfundur: Ásta Kristrún Ragnarsdóttir 
Blaðsíðufjöldi: 302