{"title":"Verðlaun og viðurkenningar","description":"","products":[{"product_id":"kennarinn-sem-hvarf","title":"Kennarinn sem hvarf","description":"\u003cp\u003eKrakkarnir í 6. BÖ eiga ekki margt sameiginlegt og semur oft illa – en dag einn breytist allt!\u003cbr\u003e Bára kennari er horfin og dularfullir atburðir draga krakkana inn í æsispennandi atburðarás.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBergrún Íris hlaut \u003ca href=\"https:\/\/bokmenntaborgin.is\/barnabokaverdlaun-gudrunar-helgadottur\"\u003eBarnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttir\u003c\/a\u003e 2019 fyrir óprentað handrit að bókinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur texta og mynda: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/bergrun-iris-saevarsdottir\"\u003eBergrún Íris Sævarsdóttir\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003eBlaðsíðufjöldi: 140\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":32195033333863,"sku":"","price":3690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/products\/Kennarinn_sem_hvarf_frontKapa.jpg?v=1586986244"},{"product_id":"langelstur-i-bekknum","title":"Langelstur í bekknum","description":"\u003cp\u003eÞað getur verið dálítið skrítið að byrja í nýjum skóla þar sem maður þekkir engan. En það eiginlega stórfurðulegt þegar níutíu og sex ára gamall karl sest við hliðina á manni og enginn kippir sér upp við það!\u003cbr\u003e Fljótlega verða bekkjarfélagarnir Eyja og Rögnvaldur ágætis vinir þrátt fyrir níutíu ára aldursmun. Þegar Eyja kemst að leyndarmáli Rögnvaldar gera þau með sér samning en tekst Eyju að standa við hann?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur og myndskreytir: Bergrún Íris\u003cbr\u003eBlaðsíðufjöldi: 78\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":32195038478439,"sku":"","price":3490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/products\/LangElstur.png?v=1586986357"},{"product_id":"langelstur-i-leynifelaginu","title":"Langelstur í leynifélaginu","description":"\u003cp\u003eÁður var Rögnvaldur langelstur í bekknum en nú hafa hlutverkin snúist við og Eyja er orðin langyngst á dvalarheimilinu með tilheyrandi gríni og glensi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEftir skemmtilegan skólavetur eru vinirnir Eyja og Rögnvaldur komin í sumarfrí! Þegar hinn háaldraði Rögnvaldur flytur á dvalarheimili fær Eyja að fylgja \u003cbr\u003e honum á meðan foreldrar hennar eru fastir í vinnu. Fljótlega bætast fleiri krakkar úr bekknum í hópinn. \u003cbr\u003e Saman stofna þau leynifélag og leggja ýmislegt á sig \u003cbr\u003e til að komast að því hvort forstöðukona heimilisins sé raunveruleg manneskja eða illt og sálarlaust vélmenni!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur texta og mynda: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/bergrun-iris-saevarsdottir\"\u003eBergrún Íris Sævarsdóttir\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003eBlaðsíðufjöldi: 117\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":32195046572135,"sku":"","price":3490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/products\/LangElsturLeyniBok.png?v=1586986451"},{"product_id":"langelstur-ad-eilifu","title":"Langelstur að eilífu","description":"\u003cp\u003eDag einn er lífi Eyju snúið á hvolf. Mamma og pabbi færa henni gleðifréttir – sem gleðja bara alls ekki neitt. \u003cbr\u003e Á sama tíma hrakar heilsu Rögnvaldar, hins 97 ára gamla besta vinar hennar og bekkjarfélaga. Eyju finnst eins og allt sé að breytast, allt of hratt!\u003cbr\u003eSvo fær Eyja frábæra hugmynd! Eftir dálitlar samningaviðræður tekst henni að sannæra Rögnvald og vinirnir halda í skemmtileg, hættuleg og spennandi ævintýri!\u003cbr\u003eEyja lærir að oft er stutt á milli sorgar og gleði og að stórar breytingar þurfa alls ekki að vera svo slæmar. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur texta og mynda: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/bergrun-iris-saevarsdottir\"\u003eBergrún Íris Sævarsdóttir\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003eBlaðsíðufjöldi: 109\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":32195066167399,"sku":"","price":3490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/products\/Langelsturadeilifu.png?v=1586986782"},{"product_id":"ro","title":"Ró","description":"\u003cp\u003eEinfaldar æfingar fyrir krakka og fullorðna til að kalla fram slökun og innri ró. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁ hverjum degi þjóta óteljandi hugsanir og tilfinningar í gegnum huga okkar.  Það getur komið sér vel að kunna aðferð til að finna innri frið og ró, til dæmis þegar þú: \u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eferð að sofa á kvöldin\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003efinnur fyrir kvíða\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eundirbýrð þig fyrir próf\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eupplifir reiði\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003evantar meiri einbeitingu\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003evilt finna gleði\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003etekst á við breytingar í lífi þínu\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003eBókin Ró er byggð á margra ára reynslu Evu Rúnar af því að kenna börnum jóga, slökun og hugleiðslu.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/eva-run-thorgeirsdottir\"\u003eEva Rún Þorgeirsdóttir\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003eMyndskreytir: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/bergrun-iris-saevarsdottir\"\u003eBergrún Íris Sævarsdóttir\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003eBlaðsíðufjöldi: 40\u003c\/p\u003e\n\u003cblockquote\u003e\n\u003ch6\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/h6\u003e\n\u003c\/blockquote\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":32195082485863,"sku":"","price":3490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/products\/Ro_framhlid.jpg?v=1586987085"},{"product_id":"villueyjar","title":"Villueyjar","description":"\u003cp\u003eÁ Útsölum stendur aðeins eitt hús: Skólahúsið.\u003cbr\u003eFrá því Arilda man eftir sér hefur þessi skóli verið hennar annað heimili. Hún hefur aldrei velt því fyrir sér hvers vegna hann standi á eyju sem annars er í eyði, ekki fyrr en daginn \u003cbr\u003esem hún heldur inn á miðja eyjuna og villist í þokunni. \u003cbr\u003eEftir það breytist allt.\u003cbr\u003eSmám saman rennur það upp fyrir Arildu að hún getur engum treyst. Hún verður sjálf að leita svara, ekki bara um hryllinginn sem býr á Útsölum heldur einnig um sína eigin fjölskyldu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/ragnhildur-holmgeirsdottir\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\"\u003eRagnhildur Hólmgeirsdóttir\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003eBlaðsíðufjöldi: 349\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":32206149877863,"sku":"","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/products\/Villueyjar.png?v=1587147815"},{"product_id":"ulfur-og-edda-dyrgripurinn","title":"Úlfur og Edda - Dýrgripurinn","description":"\u003cp\u003e\u003cspan\u003eForngrip er stolið frá ömmu Eddu og stjúpsystkinin Úlfur og Edda eru staðráðin í að endurheimta hann. Þau elta þjófinn ofan í göng undir Skálholti en enda í öðrum heimi. Úlfur og Edda eiga fyrir höndum háskaleg ævintýri á ókunnum slóðum og svo þurfa þau líka að komast heim aftur!\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur texta og mynda: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/kristin-ragna-gunnarsdottir\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\"\u003eKristín Ragna Gunnarsdóttir\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003eBlaðsíðufjöldi: 215\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":32210039472231,"sku":"","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/products\/baekur_UlfurEdda_fjoru.jpg?v=1587218574"},{"product_id":"koparborgin-kilja","title":"Koparborgin - kilja","description":"\u003cp\u003e\u003cspan\u003eÍ fjarlægu landi stendur gömul borg þar sem lystigarðar umkringja háar hallir og seglskip fylla höfnina … en hallirnar eru mannlausar og seglskipin tóm.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eVið eitt af breiðstrætum borgarinnar stendur Víxlarahúsið þar sem einungis börn hafa búið síðustu þrjár aldir. Þangað leitar Pietro eftir að hafa misst fjölskyldu sína í plágunni. Við sextán ára aldur þurfa börnin að yfirgefa húsið en þangað til standa þau saman og tekst einhvern veginn að þrauka, sama hversu hart er í ári.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003eKoparborgin var tilnefnd til \u003ca href=\"https:\/\/www.norden.org\/is\/information\/um-barna-og-unglingabokmenntaverdlaun-nordurlandarads\"\u003eNorrænu Barna- og unglingabókaverðlaunanna\u003c\/a\u003e, \u003ca href=\"http:\/\/fjoruverdlaunin.is\/\"\u003eFjöruverðlaunanna\u003c\/a\u003e og hlaut \u003ca href=\"https:\/\/bokmenntaborgin.is\/bokmenntavefur\/bokmenntaverdlaun\/barnabokaverdlaun-reykjavikur\"\u003eBarnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar\u003c\/a\u003e.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/ragnhildur-holmgeirsdottir\"\u003eRagnhildur Hólmgeirsdóttir\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003eBlaðsíðufjöldi: 198\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":32210107269223,"sku":"","price":2490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/products\/Koparborgin_kilja.png?v=1587220302"},{"product_id":"vinur-minn-vindurinn-ny-og-endurbaett","title":"Vinur minn, vindurinn","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eVinur minn vindurinn \u003c\/strong\u003eFyrstu myndabækur \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/wordpress\/um-okkur\/hofundarnir-okkar\/bergrun-iris-saevarsdottir\/\"\u003eBergrúnar Írisar Sævarsdóttur\u003c\/a\u003e, \u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVinur minn, vindurinn\u003c\/em\u003e og \u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eSjáðu mig, sumar?\u003c\/em\u003e eru hér samankomnar í endurbættri útgáfu í einu fallegu verki sem gleður augað og eykur orðaforðann um uppáhaldsumræðuefni Íslendinga – veðrið. Vinur minn, vindurinn var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið sem hún kom út.\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":32900652007527,"sku":"","price":3490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/products\/Vinurinn.png?v=1601980896"},{"product_id":"dottir-hafsins","title":"Dóttir hafsins","description":"\u003ch3 data-mce-fragment=\"1\"\u003eDóttir hafsins: Dulstafir - bók 1\u003c\/h3\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞegar hún lokaði augunum birtust myndir. Tærir tónar söguðu henni sögur af furðuveröld þar sem myrkrið réð ríkjum, lengst ofan í undirdjúpunum. Elísa tók eitt skref áfram. Svo annað.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eLelena var hvíslað. Elísu krossbrá og hún galopnaði augun. Aftur var hvíslað en í þetta sinn var hún ekki hrædd. Áfram. Án þess að hika hljóp Elísa af stað.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eLíf Elísu, sextán ára unglings frá Vestfjörðum, gjörbreytist á einni nóttu þegar hún heyrir tónlist berast frá hafinu. Tónlistin leiðir hana niður í fjöru, ofan í undirdjúpin og að fjólubláu borginni. Elísa dregst inn í háskalega atburðarrás og kemst að því að hún er hluti af spádómi ævafornrar menningar á hafsbotni. Er hún verðug þess að bera titilinn dóttir hafsins.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eHöfundur: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/kristin-bjorg-sigurvinsdottir\" target=\"_blank\"\u003eKristín Björg Sigurvinsdóttir\u003cbr\u003e\u003c\/a\u003eBlaðsíðufjöldi: 288\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eDóttir hafsins fékk tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2020.\u003c\/p\u003e\n\u003cdiv style=\"text-align: left;\"\u003e\u003cimg height=\"96\" width=\"95\" src=\"https:\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/Islbokm.jpg?v=1610960252\" alt=\"Íslensku bókmenntaverðlaunin\" style=\"margin: 2px 2px 2px 2px; float: left;\"\u003e\u003c\/div\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":32900655644775,"sku":"","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/products\/Dottir.png?v=1601981312"},{"product_id":"dvergurinn-fra-normandi","title":"Dvergurinn frá Normandí","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eFjórar ungar stúlkur sitja við útsaum undir leiðsögn fanga og dvergs. Sagan gerist í klaustri á Englandi og notar höfundur Bayeux-refilinn til að flétta saman sögur af saumastúlkunum fjórum og frásögn af sannsögulegum atburðum sem enduðu í mannskæðri orrustu við Hastings, syðst í Englandi, árið 1066. Þannig veitir hann innsýn í mikilvægan kafla í Evrópusögunni, fjallar um tíðarandann, valdabaráttu höfðingjanna og kirkjunnar manna, og afleiðingar stríðsins á líf fólksins í landinu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eSannir örlagaatburðir eru listilega ofnir inn í lifandi frásögn um vaknandi meðvitund unglinganna um ástina og illsku mannanna, sögu sem þó á sér óvænt endalok.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eLars-Henrik Olsen, líffræðingur og rithöfundur, er þekktur fyrir unglingabækur sem hann byggir á sögulegum atburðum. Auk þess hefur hann gefið út skáldverk fyrir fullorðna og ýmis rit um náttúruna. Dvergurinn frá Normandí hlaut á sínum tíma barnabókaverðlaun skólabókasafna í Danmörku og kemur nú út í fyrsta skipti í þýðingu Steinunnar Jónu Sveinsdóttur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eHöfundur: Lars-Henrik Olsen\u003cbr\u003eÞýðandi: Steinunn Jóna Sveinsdóttir\u003cbr\u003eBlaðsíðufjöldi: 398\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":33160189837415,"sku":"","price":2490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/products\/Dvergurinn.png?v=1611656210"},{"product_id":"villueyjar-kilja","title":"Villueyjar - kilja","description":"\u003cp\u003eÁ Útsölum stendur aðeins eitt hús: Skólahúsið. Frá því Arilda man eftir sér hefur þessi skóli verið hennar annað heimili. Hún hefur aldrei velt því fyrir sér hvers vegna hann standi á eyju sem annars er í eyði, ekki fyrr en daginn sem hún heldur inn á miðja eyjuna og villist í þokunni.\u003cbr\u003eEftir það breytist allt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSmám saman rennur það upp fyrir Arildu að hún getur engum treyst. Hún verður sjálf að leita svara, ekki bara um hryllinginn sem býr á Útsölum heldur einnig um sína eigin fjölskyldu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eVillueyjar\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/em\u003eer önnur bók Ragnhildar Hólmgeirsdóttur sem hlaut mikið lof fyrir sína fyrstu bók,\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eKoparborgina\u003c\/em\u003e.\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eKoparborgin\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/em\u003ehlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar en var auk þess tilnefnd til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, auk Fjöruverðlaunanna í sínum flokki.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/ragnhildur-holmgeirsdottir\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\"\u003eRagnhildur Hólmgeirsdóttir\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39307797856359,"sku":"","price":2490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/products\/villueyjar_bc2c81e9-0fe4-42b0-a05e-08f83094f46d.png?v=1618090367"},{"product_id":"farangur","title":"Farangur","description":"\u003cp\u003eYlfa stendur á brautarpallinum, loksins búin að gera upp hug sinn. Hún verður að komast burt. Undir eins, áður en hann vaknar. Lestin, sem er væntanleg á hverri stundu, mun bera hana fyrsta áfangann á leiðinni heim. Heim í öryggið á Íslandi. Ekkert má koma í veg fyrir að hún komist af stað. Ekki einu sinni þessi óvænti farangur sem hún fær í fangið.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFarangur er grípandi og hrollvekjandi spennusaga eftir Ragnheiði Gestsdóttur, höfund bókarinnar Úr myrkrinu sem kom út árið 2019 og fékk góðar viðtökur lesenda. Þetta er  bók sem erfitt er að leggja frá sér fyrr en að lestri loknum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/ragnheidur-gestsdottir\"\u003eRagnheiður Gestsdóttir \u003cbr\u003e\u003c\/a\u003eBlaðsíðufjöldi: 268\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFarangur hlaut Blóðdropann 2022 fyrir bestu glæpasögu ársins 2021!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cimg src=\"https:\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/Screenshot_2022-03-24_104313_480x480.png?v=1648118614\" alt=\"\" width=\"193\" height=\"190\" style=\"display: block; margin-left: auto; margin-right: auto;\"\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39357602693223,"sku":"","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/products\/farangur.png?v=1622025207"},{"product_id":"blikur-a-lofti","title":"Blikur á lofti","description":"\u003cp\u003eHvað á maður eiginlega að gera þegar maður er nýkominn frá lækni og búinn að fá  verstu fréttir í heimi? Jú, það veit Henrik. \u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003eHann ætlar að bjarga heiminum! \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEn hvernig gerir maður það? Henrik hefur í nógu að snúast og setur í gang mestu og trylltustu björgunaraðgerðir sem um getur!\u003cbr\u003e\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003eBlikur á lofti var tilnefnd í Noregi til Brageprisen og ARKs Barnabókaverðlaunanna 2018.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHöfundur: Arne Svingen\u003cbr\u003eÞýðandi: Kristján Jóhann Jónsson\u003cbr\u003eBlaðsíðufjöldi: 204 \u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39518291755111,"sku":"","price":1490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/products\/Blikur.jpg?v=1635417192"},{"product_id":"steinninn","title":"Steinninn","description":"\u003carticle id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp tags=\"em\"\u003eHún Steinunn Sumarliðadóttir hefur boðið til veislu, enda á hún sjötugsafmæli og því ber að fagna. Á svona tímamótum er til siðs að líta yfir farinn veg en óvænt afmælisgjöf verður til þess að Steinunn kýs að rífa af sér alla fjötra síns fyrra lífs og fljúga á vit hins óvænta.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/article\u003e\n\u003carticle id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp tags=\"em\"\u003eÍ farteskinu eru minningarnar, allar sögupersónurnar sem hafa gert henni lífið bærilegra og svo auðvitað númerið á bankareikningnum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp tags=\"em\"\u003eSteinninn er ólík fyrri skáldsögum Ragnheiðar Gestsdóttur. Framan af var hún þekktust fyrir barna- og unglingabækur sínar en síðustu ár hefur hún vakið athygli sem farsæll glæpasagnahöfundur. Steinninn fjallar um Steinunni, um þorpið og heiminn, lífið og tilveruna, uppreisn, útþrá og sólskinsblettinn í fjallinu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp tags=\"em\"\u003eHöfundur: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/ragnheidur-gestsdottir\"\u003eRagnheiður Gestsdóttir\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003eBls. 196 \u003c\/p\u003e\n\u003cp tags=\"em\"\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/article\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":40095343280231,"sku":"","price":4490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/steinninn.png?v=1683037670"},{"product_id":"dulstafir-thrileikurinn","title":"Dulstafir - þríleikurinn","description":"\u003cp\u003eAllar þrjár bækurnar í Dulstafa-bókaflokknum saman í einum pakka.\u003c\/p\u003e\n\u003cdiv style=\"text-align: left;\"\u003e\n\u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/products\/dottir-hafsins?_pos=1\u0026amp;_sid=fe4b77891\u0026amp;_ss=r\"\u003e\u003cstrong\u003eDulstafir 1: Dóttir hafsins\u003c\/strong\u003e\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞegar hún lokaði augunum birtust myndir. Tærir tónar söguðu henni sögur af furðuveröld þar sem myrkrið réð ríkjum, lengst ofan í undirdjúpunum. Elísa tók eitt skref áfram. Svo annað.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eLelena var hvíslað. Elísu krossbrá og hún galopnaði augun. Aftur var hvíslað en í þetta sinn var hún ekki hrædd. Áfram. Án þess að hika hljóp Elísa af stað.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eLíf Elísu, sextán ára unglings frá Vestfjörðum, gjörbreytist á einni nóttu þegar hún heyrir tónlist berast frá hafinu. Tónlistin leiðir hana niður í fjöru, ofan í undirdjúpin og að fjólubláu borginni. Elísa dregst inn í háskalega atburðarrás og kemst að því að hún er hluti af spádómi ævafornrar menningar á hafsbotni. Er hún verðug þess að bera titilinn dóttir hafsins.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eDóttir hafsins fékk tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2020.\u003c\/p\u003e\n\u003cdiv style=\"text-align: left;\"\u003e\n\u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/products\/bronsharpan?_pos=4\u0026amp;_sid=fe4b77891\u0026amp;_ss=r\"\u003e\u003cstrong\u003eDulstafir 2: Bronsharpan\u003c\/strong\u003e\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞarna var hún!\u003c\/span\u003e\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003eÁ upphækkuðum palli var skjannahvít stytta af konu. Hún sat á lágum kolli með bronslita hörpu í fanginu. Roðagullið bronsið var áberandi í marmarahöndunum og það glampaði á hljóðfærið í sólskininu. Elísa nálgaðist listaverkið, gjörsamlega hugfangin. Umhverfis styttuna var lágt grindverk. Á því hékk þunn steinplata með áletruninni:\u003c\/span\u003e\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003eBelinda og harpan.\u003c\/span\u003e\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003eNýr andstæðingur. Nýir bandamenn. Meiri máttur.\u003c\/span\u003e\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003eRúmu ári eftir ævintýrið í hafinu er Elísa skyndilega stödd í ókunnum heimi. Þar kynnist hún fjórum ungmennum sem hafa svipaða krafta og hún. Gæslumenn grunnefnanna hafa verið kallaðir saman til að bjarga deyjandi heimi. En tekst þeim ætlunarverk sitt?\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003eBronsharpan, var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna og valin Besta barna- og ungmennabók af bóksölum 2022\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cdiv style=\"text-align: left;\"\u003e\n\u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/products\/orrustan-um-renoru\"\u003e\u003cstrong\u003eDulstafir 3: Orrustan um Renóru\u003c\/strong\u003e\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem\u003eLoksins, hugsaði Elísa og skjálfti fór um líkamann. Fyrir framan þau glitti í furðulegt hellisop.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003carticle id=\"book_long_description\" data-mce-fragment=\"1\"\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003e\u003cem\u003eÞað var eins og jörðin væri að geispa en hefði ekki náð að loka aftur munninum. Elísa hafði séð þennan helli í draumi. Svolítið var í þann mund að gerast sem hafði ekki gerst í fimm hundruð ár. Hún lokaði augunum og hugsaði; Þetta verður að virka!\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003eEftir hrakfarirnar í marmaraborginni standa Elísa og gæslumennirnir frammi fyrir krefjandi ferðalagi sem fer með þau um gjörvallt landið. Hættur leynast víða, sterkar tilfinningar krauma og ungmennin þurfa að taka erfiðar ákvarðanir. Lokaorrustan við steingyðjua er framundan og örlög allrar Renóru hvíla á herðum þeirra.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003eEn hvað mun slík orrusta kosta þau?\u003c\/p\u003e\n\u003c\/article\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":40317956685927,"sku":"","price":9990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/Dulstafir_Trio_3d.png?v=1701685380"}],"url":"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/verdlaun-og-vidurkenningar\/bergrun-iris-saevarsdottir.oembed","provider":"Bókabeitan","version":"1.0","type":"link"}