{"title":"Bókalisti - Eva Dögg","description":null,"products":[{"product_id":"sjo-eiginmenn-evelyn-hugo","title":"Sjö eiginmenn Evelyn Hugo","description":"\u003cp\u003eHeillandi saga um ást, glamúr og gjaldið sem þarf að greiða fyrir frægðina.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eLeikkonan og einfarinn Evelyn Hugo er loks reiðubúin að segja frá glæstri ævi sinni og öllum hneykslimálunum. En þegar hún velur óþekkta blaðamanninn Monique Grant til starfans kemur það engum meira á óvart en Monique sjálfri. Af hverju varð hún fyrir valinu? Af hverju núna? Monique er ekki beinlínis á toppnum á tilverunni. Eiginmaður hennar fór frá henni og starfsframinn virðist ætla að láta á sér standa. En hvaða ástæður sem Evelyn hefur svo sem fyrir því að velja hana sem ævisagnaritara er Monique harðákveðin í að nýta þetta tækifæri til þess að klífa metorðastigann. Í ríkmannlegri íbúð Evelyn hlustar Monique sem bergnuminn á Evelyn segja ævisögu sína. Hún segir frá öllu - allt frá því hvernig hún komst til Los Angeles á sjötta áratugnum og að ákvörðun sinni um að yfirgefa kvikmyndabransann á níunda áratugnum, og auðvita eiginmönnunum sjö sem hún giftist þar á milli. Evelyn rekur sögu miskunnarleysis og metorðagirndar, óvæntrar vináttu og forboðinnar ástar, en þegar sögulokin nálgast veðrur ljóst að ævi Evelyn tengist lífi Monique með harmrænum og afdrifaríkum hætti.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eHöfundur: Taylor Jenkins Reid\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eÞýðandi: Sunna Dís Másdóttir\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eBlaðsíðufjöldi: 489\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":39951405842535,"sku":null,"price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/products\/SjoEiginmenn.png?v=1668095564"},{"product_id":"verity","title":"Verity","description":"\u003cp\u003e\u003cspan\u003eRithöfundurinn Lowen Ashleigh er í fjárhagskröggum þegar hún fær tilboð sem hún getur ekki hafnað. Jeremy Crawford, eiginmaður metsöluhöfundarins Verity Crawford, ræður Lowen til að klára síðustu bækurnar í afar vinsælum bókaflokki sem rúmföst eiginkona hans er ekki fær um að ljúka.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eLowen flyst á heimili Crawford-hjónanna á meðan hún býr sig undir að hefja verkið. Í óreiðunni á skrifstofu Verity finnur hún svolítið óvænt; ókláraða sjálfsævisögu sem Verity ætlaðist pottþétt ekki til að nokkur myndi lesa. Síða eftir síðu af játningum sem fá blóðið til að frjósa í æðunum, þar á meðal um hvað gerðist raunverulega daginn sem dóttir hennar dó.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eAndrúmsloftið í húsinu verður sífellt drungalegra. Tilfinningar Lowen til Jeremy dýpka á sama tíma og uggvænlegur grunur um yfirvofandi hættu ágerist. Og á efri hæðinni liggur Verity í eigin heimi. Eða hvað?\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur: Colleen Hoover\u003cbr\u003eÞýðendur: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/birgitta-elin-hassell\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\"\u003eBirgitta Elín Hassell\u003c\/a\u003e og \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/marta-hlin-magnadottir\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\"\u003eMarta Hlín Magnadóttir\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":40043202838631,"sku":"","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/products\/Verity.png?v=1677695697"},{"product_id":"malibu-brennur","title":"Malibu brennur","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003eÞað er komið að árlegu sumarlokapartíi Ninu Riva og tilhlökkunin er næstum áþreifanleg enda vilja allir vera í návist Riva-systkinanna fjögurra. Nina er bæði hæfileikarík brimbrettakona og ofurfyrirsæta og bræðurnir Jay og Hud hafa líka getið sér góðan orðstír, annar er margverðlaunaður brimbrettakappi og hinn mikils metinn ljósmyndar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003eOg svo er það krúttlega yngsta systirin. Kit. Systkynin vekja athygli um heim allan - enda afkomendur stjörnusöngvarans Micks Riva.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003eSú eina sem hlakkar ekkert til partísins í ár er Nina sjálf. Hún á nóg með að sætta sig við að atvinnutennisleikarinn eiginmaður hennar er nýfarinn frá henni fyrir aðra tennisstjörnu. Já. Og kannski Hud - því hann á ekki annarra kosta völ en að játa svik sín fyrir Jay, bróðurnum sem hefur staðið honum næst alla tíð. Kit á líka nokkur leyndarmál, til dæmis um gestinn sem hún bað á laun í partíið. Þegar hann skýtur upp kollinum fer allt á annan endann og á miðnætti er partíið algjörlega farið úr böndunum...\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003eMalibu brennur er ógleymanleg fjölskyldusaga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" tags=\"em\"\u003eHöfundur: Taylor Jenkins Reid\u003cbr\u003eÞýðandi: Sunna Dís Másdóttir\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":40163705356391,"sku":"","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/MalibuBrennur.png?v=1689669775"},{"product_id":"stelpur-stranglega-bannadar","title":"Stelpur stranglega bannaðar","description":"\u003cp\u003eBíddu ha?\u003cbr\u003eSónarmynd... í símanum hennar ömmu?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGÆTU HLUTIRNIR MÖGULEGA ORÐIÐ EITTHVAÐ VERRI?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eNýja stelpan í bekknum er búin að stela bestu vinkonu Þórdísar. Staða hennar sem eina stelpan í stórfjölskyldunni er kannski í hættu. Þórdís vonar að þetta séu óþarfa áhyggjur; að hún haldi stöðu sinni í fjölskyldunni og nái að endurheimta bestu vinkonu sína. \u003cbr\u003eHún þráir ekkert heitar en að allt verði eins og áður.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eStelpur stranglega bannaðar er fyrsta bók hinnar 17 ára Emblu Bachmann. Bókin hlaut tilnefningu til íslensku bókmenntaverðlaunanna. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/embla-bachmann\"\u003eEmbla Bachmann\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":40171890671719,"sku":"","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/StelpurBannadar.png?v=1690540651"},{"product_id":"tumi-fer-til-tunglsins","title":"Tumi fer til tunglsins","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eTil tunglsins hefur mig svo lengi langað...\"\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eTumi litli getur ekki sofnað. Hann þiggur boð karlsins í tunglinu um að skreppa til hans á góðra vina fund\" og svífur af stað í rúminu sínu út í vornóttina. Á vegi hans verða forvitnir fuglar, lífsreyndir regndropar, börn frá öllum heimshornum og sjálfur karlinn í tunglinu sem hefur lengi gefið jarðarbúum gætur og á nú mikilvægt erindi við börnin.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞessari ævintýraferð er hér lýst í skemmtilegu söguljóði og söngvum. Höfundurinn, Jóhann G. Jóhannsson, var um árabil tónlistarstjóri í leikhúsum borgarinnar þar sem hann lagði eitt og annað af mörkum á sviði barnamenningar, t.d. tónlistina við ævintýrasöngleikinn Skilaboðaskjóðuna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eBókin er listilega myndlýst af Lilju Cardew, sem nýlokið hefur myndlistarnámi í Englandi þar sem hún vann 1.verðlaun í samkeppni um kápumynd fyrir útgáfurisann Penguin.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eHöfundur: Jóhann G. Jóhannsson\u003cbr\u003eMyndhöfundur: Lilja Cardew\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":40602093420647,"sku":"","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/tumi.png?v=1712918953"},{"product_id":"kaerokeppnin","title":"Kærókeppnin","description":"\u003carticle id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp tags=\"em\"\u003eDavíð og Natalía hafa verið bestu vinir síðan þau fæddust. Þau hafa líka verið að keppa síðan þau fæddust. Nú etja þau kappi í splunkunýrri keppni sem gengur út á að komast í samband. Upphitun sem setur tóninn, brösuglegt upphaf, æsispennandi framvinda og óvæntar lokamínútur.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/article\u003e\n\u003carticle id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp tags=\"em\"\u003eFótbolti, handbolti og körfubolti eru alltaf í kringum okkur. En það er ekki á hverjumd degi sem þér gefst tækifæri til að fylgjast með beinni textalýsingu á kærókeppni!Þetta stefnir í hörkukeppni!\u003c\/p\u003e\n\u003cp tags=\"em\"\u003eHöfundur: \u003ca rel=\"noopener\" href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/embla-bachmann\" target=\"_blank\"\u003eEmbla Bachmann\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/article\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":41047646404711,"sku":"","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/KaroKeppnin.png?v=1728988705"},{"product_id":"inni","title":"Inni","description":"\u003carticle id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp tags=\"em\"\u003eBendibækur eru fyrstu bækur barnsins og tengja saman hlut, orð og mynd. Þær þurfa því að endurspegla það umhverfi sem barnið er að átta sig á. Lestur í hlýju fangi eflir málþroska og skapar notalegar gæðastundir sem barn og lesandi njóta saman.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/article\u003e\n\u003carticle id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp tags=\"em\"\u003eMyndefni litskrúðugra og einfaldra klippimynda Ragnheiðar Gestsdóttur í bókunum Inni og Úti er sótt í hversdagslegt íslenskt umhverfi þar sem kúrt er inni og lesið með bangsa, sandurinn í sandkassanum er svartur og nauðsynlegt er að hafa húfu á höfði þegar farið er út!\u003c\/p\u003e\n\u003c\/article\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":41122739322983,"sku":"","price":2490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/inni.png?v=1734000506"},{"product_id":"uti","title":"Úti","description":"\u003carticle id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp tags=\"em\"\u003eBendibækur eru fyrstu bækur barnsins og tengja saman hlut, orð og mynd. Þær þurfa því að endurspegla það umhverfi sem barnið er að átta sig á. Lestur í hlýju fangi eflir málþroska og skapar notalegar gæðastundir sem barn og lesandi njóta saman.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/article\u003e\n\u003carticle id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp tags=\"em\"\u003eMyndefni litskrúðugra og einfaldra klippimynda Ragnheiðar Gestsdóttur í bókunum Inni og Úti er sótt í hversdagslegt íslenskt umhverfi þar sem kúrt er inni og lesið með bangsa, sandurinn í sandkassanum er svartur og nauðsynlegt er að hafa húfu á höfði þegar farið er út!\u003c\/p\u003e\n\u003c\/article\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":41122740306023,"sku":"","price":2490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/Uti.png?v=1734000688"},{"product_id":"amelia-og-oliver","title":"Amelía og Óliver","description":"\u003cp\u003eAmelía og Óliver eru fjörug systkini. Dag einn eru þau úti að leika sér þegar þau hitta TRÖLL!\u003cbr\u003eAmelía og Óliver verða hrædd en komast fljótt að því að tröllið vildi bara leika. Það reynist hægara sagt en gert að leika við tröll en systkinin deyja ekki ráðalaus.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAmelía og Óliver er hugljúf saga um vináttu og leikgleði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundar: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/kristin-bjorg-sigurvinsdottir\" rel=\"noopener\" target=\"_blank\"\u003eKristín Björg Sigurvinsdóttir\u003c\/a\u003e og \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/sigrun-alda-sigfusdottir\"\u003eSigrún Alda Sigfúsdóttir\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003eMyndhöfundur: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/herborg-arnadottir\"\u003eHerborg Árnadóttir\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eHöfundar bókarinnar eru Kristín Björg Sigurvinsdóttir rithöfundur og Sigrún Alda Sigfúsdóttir talmeinafræðingur. Herborg Árnadóttir er myndhöfundur og hönnuður bókar og kápu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003ci\u003eAmelía og Óliver\u003c\/i\u003e er ríkulega myndlýst barnabók og í henni eru kennd 27 millilagsorð, þ.e. orð sem börn heyra síður í töluðu máli en eru mjög mikilvæg þegar kemur að því að lesa sér til gagns. Fremst í bókinni eru leiðbeiningar um hvernig lestur bókarinnar nýtist sem best og á hverri opnu eru tekin fyrir eitt til tvö orð sem eru sérstaklega útskýrð. Aftast í bókinni er svo skemmtilegt verkefni þar sem hægt er að rifja upp orðin og fletta þeim upp í bókinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eMarkmið bókarinnar er fyrst og fremst að gleðja unga lesendur og aðstandendur þeirra en samhliða því að kenna ný orð í gegnum lestur og leik. Bókin hentar fyrir breiðan aldurshóp þar sem hún hentar vel til upplestur en er jafnframt aðgengilegt lesefni fyrir börn sem eru sjálf byrjuð að lesa.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eHægt er að fræðast meira um bókina og höfunda á \u003ca href=\"https:\/\/ordabrunnur.is\/\"\u003e\u003ci\u003ehttps:\/\/ordabrunnur.is\/\u003c\/i\u003e\u003c\/a\u003e\u003ci\u003e \u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":41290404986983,"sku":"","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/amelia.png?v=1743417274"},{"product_id":"paradisareyjan","title":"Paradísareyjan","description":"\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eEyjuhátíðin er haldin árlega en í þetta sinn fer allt úr böndunum …\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eVinirnir Freyja og Hallgrímur eru yfir sig spennt og mæta niður á bryggju að taka á móti gestunum. En þeir eru fleiri en vanalega og líka dónalegri! Þegar Freyja og Hallgrímur fara að rannsaka málið komast þau að því að flestir eru líklega ekki komnir til að taka þátt í hátíðinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eAf hverju kom þetta fólk á eyjuna?\u003cbr\u003eHefur það eitthvað að gera með nýja bæjarstjórann?\u003cbr\u003e… og hvað er eiginlega Paradísareyjan?\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eParadísareyjan er þriðja bók Emblu Bachmann. Fyrstu tvær: \u003cb\u003eStelpur stranglega bannaðar \u003c\/b\u003eog \u003cb\u003eKærókeppnin \u003c\/b\u003evoru báðar tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. \u003cspan style=\"mso-spacerun: yes;\"\u003e \u003c\/span\u003eEmbla hefur líka umsjón með Krakkafréttum og útvarpsþáttunum \u003ci\u003eHvað ertu að lesa? \u003c\/i\u003eÁrið 2024 hlaut hún Vorvinda IBBY á Íslandi fyrir framlag sitt til barnamenningar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eBókin er myndlýst af hinni hæfileikaríku og margverðlaunuðu \u003cb\u003eBergrúnu Írisi\u003c\/b\u003e, rithöfundi og teiknara\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eHöfundur: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/embla-bachmann\"\u003eEmbla Bachmann\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003eMyndhöfundur: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/bergrun-iris-saevarsdottir\"\u003eBergrún Íris Sævarsdóttir\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eBlaðsíðufjöldi: 208\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":41696620085351,"sku":null,"price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/ParadisarEyjan.png?v=1759521200"},{"product_id":"hjartslatturinn-hennar-lou","title":"Hjartslátturinn hennar Lóu","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eÍ dag fær Lóa að gera öll sín uppáhalds prakkarastrik – og fyrir því er alveg sérstök ástæða.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDýralæknirinn sagði nefnilega að nú væri lítið eftir í tímaglasinu hennar. Því fær Lóa heilan dag til að skapa minningar með bestu vinkonu sinni, minningar sem munu lifa eftir að Lóa er farin.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eLilja er sjálfstætt starfandi myndhöfundur, menntuð frá Leeds Arts University. Fyrir myndlýsingu bókarinnar Tumi fer til tunglsins hlaut hún gullverðlaun FÍT í flokki myndrænna frásagna og var tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar í flokki myndlýsinga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKristín lærði klassískan þverflautuleik og rak svo eigin vinnustofu og fatamerki eftir að hún lagði flautuleikinn á hilluna. Síðustu tuttugu ár hefur hún starfað með börnum, sem eru hennar uppáhalds fólk, en Kristín er líka mikil dýravinkona.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur: Kristín Cardew\u003cbr\u003eMyndhöfundur: Lilja Cardew\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBlaðsíðufjöldi: 40\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHjartslátturinn hennar Lóu er tilnefnd til Fjöruverðlaunanna 2025!\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":41696628899943,"sku":null,"price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/Loa_ISL-fjoru.png?v=1765185481"},{"product_id":"amelia-og-oliver-fara-i-bustad","title":"Amelía og Óliver fara í bústað","description":"\u003cp\u003eAmelía og Óliver fara í bústað með ömmu og mömmu. Þar hitta þau óvænt tröllið Blæ sem er í heimsókn hjá frænku sinni. Saman fara þau í berjamó og lenda í alls konar ævintýrum í fallegri íslenskri náttúru. Amelía og Óliver er hugljúf saga um vináttu og leikgleði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundar:\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/kristin-bjorg-sigurvinsdottir\" rel=\"noopener\" target=\"_blank\"\u003eKristín Björg Sigurvinsdóttir\u003c\/a\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eog\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/sigrun-alda-sigfusdottir\"\u003eSigrún Alda Sigfúsdóttir\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003eMyndhöfundur:\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/herborg-arnadottir\"\u003eHerborg Árnadóttir\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eHöfundar bókarinnar eru Kristín Björg Sigurvinsdóttir rithöfundur og Sigrún Alda Sigfúsdóttir talmeinafræðingur. Herborg Árnadóttir er myndhöfundur og hönnuður bókar og kápu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003ci\u003eAmelía og Óliver\u003c\/i\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eer ríkulega myndlýst barnabók og í henni eru kennd millilagsorð, þ.e. orð sem börn heyra síður í töluðu máli en eru mjög mikilvæg þegar kemur að því að lesa sér til gagns. Fremst í bókinni eru leiðbeiningar um hvernig lestur bókarinnar nýtist sem best og á hverri opnu eru tekin fyrir eitt til tvö orð sem eru sérstaklega útskýrð. Aftast í bókinni er svo skemmtilegt verkefni þar sem hægt er að rifja upp orðin og fletta þeim upp í bókinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eMarkmið bókarinnar er fyrst og fremst að gleðja unga lesendur og aðstandendur þeirra en samhliða því að kenna ný orð í gegnum lestur og leik. Bókin hentar fyrir breiðan aldurshóp þar sem hún hentar vel til upplestur en er jafnframt aðgengilegt lesefni fyrir börn sem eru sjálf byrjuð að lesa.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eHægt er að fræðast meira um bókina og höfunda á\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ca href=\"https:\/\/ordabrunnur.is\/\"\u003e\u003ci\u003ehttps:\/\/ordabrunnur.is\/\u003c\/i\u003e\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42210217394279,"sku":null,"price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/AmeliaOLiver.png?v=1771847939"},{"product_id":"allt-minnir-a-thig","title":"Allt minnir á þig","description":"\u003cp\u003eEftir að hafa afplánað fimm ára fangelsisdóm snýr Kenna Rowan aftur til bæjarins þar sem allt fór úrskeiðis, í von um að fá að hitta fjögurra ára dóttur sína. En Kenna fær ekki tækifæri til að byggja aftur brýrnar sem hún brenndi því fólkið í lífi dóttur hennar er staðráðið í að halda þeim aðskildum. Sá eini sem hefur ekki lokað alveg á Kennu er Ledger Ward.\u003cbr\u003eSamband Kennu og Ledgers verður sífellt nánara. Ef einhver kemst að því gætu þau bæði glatað því sem skiptir þau mestu máli í lífinu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur:\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/colleen-hoover\"\u003eColleen Hoover\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eÞýðendur: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/birgitta-elin-hassell\"\u003eBirgitta Elín Hassell\u003c\/a\u003e \u0026amp; \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/marta-hlin-magnadottir\"\u003eMarta Hlín Magnadóttir\u003c\/a\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42237211050087,"sku":null,"price":4490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/AlltMinnir.png?v=1772966908"},{"product_id":"leidin-heim","title":"Leiðin heim","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eEinn fallegan vordag í París rennur það upp fyrir Malín að hún getur ekki lengur falið sig á bak við að vera tuttugu og eitthvað, enn að finna sig, enn með tímann með sér í liði. Á yfirborðinu virðist líf hennar fullkomið. Ástin örugg. Framtíðin skipulögð. Fótboltastelpan úr Árbænum er komin á stað sem hana hefði aldrei getað dreymt um.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eEn er lífið sem hún hefur valið sér raunverulega hennar? Eða hefur hún verið á stöðugum hlaupum – ekki í átt að draumum sínum, heldur í burt frá gömlum sárum? Og hvað gerist þegar hún mætir draugi fortíðar, fyrstu ástinni, eftir allan þennan tíma?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur: Karítas Sigurðardóttir\u003cbr\u003eBlaðsíðufjöldi: 227\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42276698062951,"sku":null,"price":4490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/LeidinHeim.png?v=1774432151"},{"product_id":"andrumsloft","title":"Andrúmsloft","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eJoan Goodwin hefur verið gagntekin af stjörnunum frá því hún man eftir sér.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHún lifir kyrrlátu lífi, kennir stjörnufræði og tekur virkan þátt í uppeldi systurdóttur sinnar.  Þegar hún svarar auglýsingu frá NASA, þar sem í fyrsta sinn er óskað sérstaklega eftir umsóknum vísindakvenna um geimfaraþjálfun hjá stofnuninni, snýst líf hennar á hvolf.\u003cbr\u003eJoan er valin úr þúsundum umsækjenda og hefur þjálfun hjá geimferðastofnuninni. Nú snýst allt um að vera skipuð í áhöfn og verða ein af fáum útvöldum sem fá að fara út í geim. Hjá NASA kynnist hún fólki sem verður henni fljótt eins og önnur fjölskylda: flugmönnunum Hank\u003cbr\u003eog Griff, hinni sérvitru Lydiu, Donnu með gullhjartað og Vanessu Ford, flugvélaverkfræðingnum heillandi sem vekur með Joan alveg nýjar tilfinningar. Saman tekst hópurinn á við krefjandi verkefni og fetar ókannaðar slóðir, bæði hið innra og ytra. Joan virðist hafa fengið allt sem hana dreymir um.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞar til í desember 1984, í leiðangri STS-LR9, þegar hið óhugsandi gerist.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAndrúmsloft er saga af óbilandi metnaði og dirfsku, af fólki sem þorir að elta drauma sína og hvernig það tekst á við það þegar draumurinn breytist í martröð. Umfram allt er hún hrífandi ástarsaga, eins og Taylor Jenkins Reid einni er lagið.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞýðandi: Sunna Dís Másdóttir\u003cbr\u003eBlaðsíðufjöldi: 400\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":44551792754791,"sku":null,"price":4490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/Andrumsloft.png?v=1788435837"},{"product_id":"domsdagur","title":"DómsDagur","description":"\u003cp\u003eBlóðþyrstu mannæturnar Dagur og Ylfa eru á flótta undan Interpol ásamt læknanemanum Inga Birni. Þegar hungrið vaknar er aðeins ein leið til þess að seðja það! Flóttinn verður að blóði drifinni Evrópureisu með viðkomu í líkbrennslu í Stuttgart, útsýnisturni í Svartaskógi og baðhúsi í Búdapest.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVarúð! Bókin inniheldur blóð og innyfli en einnig erótík og blauta kossa í formi trylltra teikninga eftir Simma Breiðfjörð. Lestu líka \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/products\/veikindadagur\"\u003eVeikindadag\u003c\/a\u003e, \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/products\/nammidagur\"\u003eNammidag \u003c\/a\u003eog \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/products\/skuldadagur\"\u003eSkuldadag \u003c\/a\u003e– en hafðu í huga að bækurnar um Dag og Ylfu eru alls ekki fyrir viðkvæma!\u003c\/p\u003e\n\u003cdiv class=\"x11i5rnm xat24cr x1mh8g0r x1vvkbs xtlvy1s\"\u003e\u003cspan\u003eHöfundarnir hafa hlotið verðskuldað lof lesenda og gagnrýnenda og hafa fengið bæði verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín.\u003c\/span\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv class=\"x11i5rnm xat24cr x1mh8g0r x1vvkbs xtlvy1s\"\u003e\n\u003cspan\u003e\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eHöfundur: \u003c\/span\u003e\u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/bergrun-iris-saevarsdottir\"\u003eBergrún Íris Sævarsdóttir\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eMyndhöfundur: \u003c\/span\u003e\u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/sigmundur-b-thorgeirsson\"\u003eSigmundur B. Þorgeirsson\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50342075072615,"sku":null,"price":5990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/DomsDagur.png?v=1790593486"},{"product_id":"fardu-um-jolin","title":"Farðu um jólin","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eÆsispennandi jóladagatal! Ísabella og Lúkas eru erkióvinir en neyðast til að vinna saman þegar mamma hennar og pabbi hans byrja að deita. Jólin nálgast og það síðasta sem þau vilja er að verja þeim saman. Þau beita því ýmsum brögðum til að reyna að fá foreldra sína til að hætta saman.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEn tekst þeim það áður en klukkurnar hringja inn jólin?\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eFarðu um jólin er fjórða bók hinnar tvítugu Emblu Bachmann. Fyrir fyrri bækur sínar hefur Embla verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Sagna: Verðlaunahátíðar barnanna. Embla hefur einnig hlotið Vorvinda IBBY á Íslandi fyrir framlag sitt til barnamenningar, verið í hópi Framúrskarandi ungra Íslendinga og hlotið Íslensku hljóðbókaverðlaunin.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eHöfundur: \u003c\/span\u003e\u003ca rel=\"noopener\" href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/embla-bachmann\" target=\"_blank\"\u003eEmbla Bachmann\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50678524903527,"sku":null,"price":5990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/FarduUmJolin.png?v=1793021775"}],"url":"https:\/\/bokabeitan.is\/is\/collections\/bokalisti-eva-dogg.oembed","provider":"Bókabeitan","version":"1.0","type":"link"}