Farangur

2.490 kr

Ylfa stendur á brautarpallinum, loksins búin að gera upp hug sinn. Hún verður að komast burt. Undir eins, áður en hann vaknar. Lestin, sem er væntanleg á hverri stundu, mun bera hana fyrsta áfangann á leiðinni heim. Heim í öryggið á Íslandi. Ekkert má koma í veg fyrir að hún komist af stað. Ekki einu sinni þessi óvænti farangur sem hún fær í fangið.

Farangur er grípandi og hrollvekjandi spennusaga eftir Ragnheiði Gestsdóttur, höfund bókarinnar Úr myrkrinu sem kom út árið 2019 og fékk góðar viðtökur lesenda. Þetta er  bók sem erfitt er að leggja frá sér fyrr en að lestri loknum.

Höfundur: Ragnheiður Gestsdóttir 
Blaðsíðufjöldi: 268

Farangur hlaut Blóðdropann 2022 fyrir bestu glæpasögu ársins 2021!