Brúðkaup í desember

2.690 kr

Glitrandi vetrarrómans með ást, óveðri og örlitlu drama.

White-fjölskyldan kemur saman í snjóþungri Aspen til að vera viðstödd brúðkaup yngsta fjölskyldumeðlimsins, Rosie. Hún er að giftast ástinni sinni, sem hún hefur bara þekkt í nokkrar vikur.
Fyrst á staðinn eru foreldrarnir. Þau eru staðráðin í að fagna þessum tímamótum af  heilum hug án þess að ljóstra upp um leyndarmálið sem þau hafa lúrt á í marga mánuði.
Eldri systirin, Katie, dauðkvíðir brúðkaupinu. Hún hefur áhyggjur af því að hvatvísa, blíðlynda litla systir sé að gera gríðarleg mistök og er harðákveðin í að bjarga henni frá
sjálfri sér. Bara ef þessi hræðilega myndarlegi Jordan gæti hætt að skipta sér af …
Rosie elskar tilvonandi eiginmann sinn út af lífinu en efinn nagar hana og nú þegar allir eru mættir í brúðkaupið– hvernig getur hún þá sagt að hún sé ekki viss?
Þetta verða jól sem White-fjölskyldan mun aldrei gleyma.

Höfundur: Sarah Morgan
Þýðandi: Birgitta Elín Hassell
Blaðsíðufjöldi: 415