{"product_id":"andrumsloft","title":"Andrúmsloft","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eJoan Goodwin hefur verið gagntekin af stjörnunum frá því hún man eftir sér.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHún lifir kyrrlátu lífi, kennir stjörnufræði og tekur virkan þátt í uppeldi systurdóttur sinnar.  Þegar hún svarar auglýsingu frá NASA, þar sem í fyrsta sinn er óskað sérstaklega eftir umsóknum vísindakvenna um geimfaraþjálfun hjá stofnuninni, snýst líf hennar á hvolf.\u003cbr\u003eJoan er valin úr þúsundum umsækjenda og hefur þjálfun hjá geimferðastofnuninni. Nú snýst allt um að vera skipuð í áhöfn og verða ein af fáum útvöldum sem fá að fara út í geim. Hjá NASA kynnist hún fólki sem verður henni fljótt eins og önnur fjölskylda: flugmönnunum Hank\u003cbr\u003eog Griff, hinni sérvitru Lydiu, Donnu með gullhjartað og Vanessu Ford, flugvélaverkfræðingnum heillandi sem vekur með Joan alveg nýjar tilfinningar. Saman tekst hópurinn á við krefjandi verkefni og fetar ókannaðar slóðir, bæði hið innra og ytra. Joan virðist hafa fengið allt sem hana dreymir um.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞar til í desember 1984, í leiðangri STS-LR9, þegar hið óhugsandi gerist.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAndrúmsloft er saga af óbilandi metnaði og dirfsku, af fólki sem þorir að elta drauma sína og hvernig það tekst á við það þegar draumurinn breytist í martröð. Umfram allt er hún hrífandi ástarsaga, eins og Taylor Jenkins Reid einni er lagið.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞýðandi: Sunna Dís Másdóttir\u003cbr\u003eBlaðsíðufjöldi: 400\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":44551792754791,"sku":null,"price":4490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/Andrumsloft.png?v=1788435837","url":"https:\/\/bokabeitan.is\/products\/andrumsloft","provider":"Bókabeitan","version":"1.0","type":"link"}