{"product_id":"traustabrestir","title":"Traustabrestir","description":"\u003cp\u003e„Þetta er í fyrsta skipti sem ég fer í jarðarför. Ég er ekki nema fimmtán ára gömul svo það er svo sem ekkert skrýtið að ég hafi aldrei þurft að ganga í gegnum þetta áður. Við nemum staðar við tröppurnar innst í kirkjunni og virðum kistuna fyrir okkur. Kistuna hans pabba.“\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁrið 1961 leyfir hin sextán ára hlédræga Ragna ungum og myndarlegum pilti, Oddi, að leiða sig út á dansgólfið. Ástin blómstrar og unga parið leggur hamingjusamt af stað út í tilveruna, fer að búa og byggja upp fjölskyldu. En lífið fylgir ekki alltaf fyrirframgefnum uppskriftum. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAlvarleg veikindi setja strik í reikninginn og Ragna þarf að takast á við mun flóknari og stærri áskoranir en hún hafði nokkurn tímann gert ráð fyrir.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTraustabrestir er sannsöguleg skáldævisaga þar sem Sigurrós Jóna, dóttir Rögnu og Odds, segir frá lífi foreldra sinna auk þess að gefa innlit í eigin minningar frá unglingsárunum og sín fyrstu kynni af sorg og missi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/sigurros-jona-oddsdottir\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\"\u003eSigurrós Jóna Oddsdóttir\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":44533388148839,"sku":null,"price":7490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/TraustaBrestir_Cover_4254e31a-690f-466a-bc7f-31267f573fbd.png?v=1788181514","url":"https:\/\/bokabeitan.is\/products\/traustabrestir","provider":"Bókabeitan","version":"1.0","type":"link"}