{"product_id":"vodagerdi-kornelius","title":"Voðagerði: Kornelíus","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eVelkomin aftur í Voðagerði – hér er allt að óttast! Kvöld eitt fer Kornelíus niður í kjallara að sækja kartöflur. Fleira leynist þó í kjallaranum, og ekki allt jafn meinlaust og kartöflur. Kornelíus fær Lilju bekkjarsystur sína til liðs við sig og saman kafa þau í leyndardóma myrkratjarnarinnar.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eÁ Reykjanesskaga liggur bær sem sést ekki með berum augum en þú finnur stundum fyrir þegar þú lítur yfir hraunið. Það er allt og sumt. Dálítil tilfinning sem þú heldur að sé bara eftirvænting eða söknuður. Bærinn heitir Voðagerði og er við fyrstu sýn ekki ólíkur þeim bæjum sem þú þekkir nú þegar. Ekki við fyrstu sýn …\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ Voðagerði gerast skrýtnir hlutir.\u003cbr\u003e\u003cspan style=\"font-size: 0.875rem;\"\u003eStundum uggvænlegir. \u003cbr\u003eStundum hreint og beint hryllilegir.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eEkki fyrir viðkvæmar sálir!\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/hilmar-orn-oskarsson\"\u003eHilmar Örn Óskarsson\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003eMyndhöfundur: \u003ca href=\"https:\/\/bokabeitan.is\/collections\/blaer-gudmundsdottir\"\u003eBlær Guðmundsdóttir\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁður hefur komið út bókin Voðagerði: Lilja en auk þess hafa Hilmar og Blær unnið saman að gerð bókanna Holupotvoríur alls staðar! og Dredfúlíur, flýið! Einnig hafa þau heimsótt fjölmarga grunnskóla og fengið nemendur í leik með ímyndunaraflið við sköpun texta og mynda. Hugmyndin að Voðagerði kviknaði einmitt í kjölfar þessara heimsókna.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Bókabeitan","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50678533259367,"sku":null,"price":5290.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0278\/8619\/0695\/files\/Vodagerdi2_KORNELIUS_kapa.jpg?v=1793022167","url":"https:\/\/bokabeitan.is\/products\/vodagerdi-kornelius","provider":"Bókabeitan","version":"1.0","type":"link"}