Kennarinn sem kveikti í

3.690 kr

Nýr afleysingakennari tekur við BÖ-bekknum eftir ógurlegar hremmingar síðustu mánaða. Þegar krakkarnir eru sendir í dularfullan ratleik í mannlausum skólanum læðist að þeim óþægilegur grunur og ýmsar spurningar vakna.

Hvar er afleysingakennarinn?

Hver er þrautakóngurinn?

Hvern á að steikja á teini?

Í þetta sinn fylgjum við hinum einstaka, bráðgreinda en stundum misskilda Fannari í gegnum hraða, fyndna og hörkuspennandi atburðarás í bók sem fær hárin til að rísa. Fyrri Kennarabækurnar vöku mikla lukku hjá gagnrýnendum og lesendum sem kröfðust þess að fá fleiri bækur. Bergrún Íris svarar þeirri kröfu með sinni mest spennandi bók hingað til - og sögulokum sem koma á óvart!

Höfundur texta og mynda: Bergrún Íris Sævarsdóttir
Blaðsíðufjöldi:  160