Malibu brennur

3.990 kr

Það er komið að árlegu sumarlokapartíi Ninu Riva og tilhlökkunin er næstum áþreifanleg enda vilja allir vera í návist Riva-systkinanna fjögurra. Nina er bæði hæfileikarík brimbrettakona og ofurfyrirsæta og bræðurnir Jay og Hud hafa líka getið sér góðan orðstír, annar er margverðlaunaður brimbrettakappi og hinn mikils metinn ljósmyndar.

Og svo er það krúttlega yngsta systirin. Kit. Systkynin vekja athygli um heim allan - enda afkomendur stjörnusöngvarans Micks Riva.

Sú eina sem hlakkar ekkert til partísins í ár er Nina sjálf. Hún á nóg með að sætta sig við að atvinnutennisleikarinn eiginmaður hennar er nýfarinn frá henni fyrir aðra tennisstjörnu. Já. Og kannski Hud - því hann á ekki annarra kosta völ en að játa svik sín fyrir Jay, bróðurnum sem hefur staðið honum næst alla tíð. Kit á líka nokkur leyndarmál, til dæmis um gestinn sem hún bað á laun í partíið. Þegar hann skýtur upp kollinum fer allt á annan endann og á miðnætti er partíið algjörlega farið úr böndunum...

Malibu brennur er ógleymanleg fjölskyldusaga.

Höfundur: Taylor Jenkins Reid
Þýðandi: Sunna Dís Másdóttir