Tarotspil norrænna goðsagna - Byrjendanámskeið - 1. apríl - Akureyri
Hvenær: Miðvikudaginn 1. apríl 2026 kl. 17:30 - 19:45
Hvar: Ketilkaffi, Kaupvagnsstræti 8-12, Akureyri
Kristín Ragna Gunnarsdóttir, höfundur Tarotspila norrænna goðsagna, fer yfir spilastokkinn, rýnir í örlagaspilin og lágspilin, veitir innsýn í táknræna merkingu spilanna og segir frá goðsögunni sem liggur að baki hverju spili. Einnig verður farið yfir nokkrar einfaldar lagnir sem þátttakendur geta spreytt sig á að námskeiði loknu 🧡
Innifalið í gjaldinu er vegleg askja með Tarotspilum norrænna goðsagna og handbók, ásamt sætum bita frá Ketilkaffi á meðan á námskeiðinu stendur.
Ath! Átt þú Tarotspil norrænna goðsagna en vilt samt taka þátt í námskeiðinu? hafðu samband við okkur á pantanir@bokabeitan.is
Takmarkað pláss er í boði.
