Blær Guðmundsdóttir
Blær Guðmundsdóttir (f. 1973) er teiknari, barnabókahöfundur og grafískur hönnuður.
Hún sendi frá sér sína fyrstu frumsömdu bók, Sipp, Sippsippanipp og Sippsippanippsippsúrumsipp – systurnar sem ætluðu sko ekki að giftast prinsum árið 2019.
Blær vann FÍT-verðlaunin 2020 fyrir þessa frumraun sína og hlaut einnig tilnefningu til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar í flokki myndlýstra bóka.
Hún hefur teiknað kápur og myndlýst fjölda barnabóka og má þar nefna bækurnar um Stúf, Holupotvoríur og Dredfúlíur! Flýið!. Blær og Eva Rún semja saman þrautabækur Stúfs.