40 vikur

1.490 kr

Sunna er að ljúka vorprófum í 10. bekk. Fram undan er áhyggjulaust sumar og handan þess spennandi tímar menntaskólaáranna. Kvöldið sem krakkarnir fagna próflokum hittir Sunna Bigga, sætasta strákinn í bekknum. Þau eyða nóttinni saman heima hjá Sunnu. Þegar líður á haustið breytist allt lífið þegar hún kemst að því að nóttin hefur haft afleiðingar.

Bókin 40 vikur hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin árið 2001 og kemur nú út í endurbættri útgáfu.

Höfundur: Ragnheiður Gestsdóttir
Blaðsíðufjöldi 231