Húðin og umhirða hennar

3.990 kr

Í bókinni má finna margvíslegan fróðleik um húðina og hvernig best er að annast hana. Hér má fræðast um starfsemi húðarinnar, algeng húðvandamál, ólíkar húðvörur og virkni þeirra. Lesendur læra að greina sína húðgerð og fá ráðleggingar um hvaða húðvörur henta best, einnig með tilliti til ákveðinna húðvandamála.

Langar þig að:
• Læra að greina húðgerð þína?
• Læra að velja húðvörur sem henta þinni húð?
• Læra að setja saman persónulega húðrútínu?
• Fræðast um innihaldsefni húðvara?

KRISTÍN SAM hefur áralanga þekkingu og reynslu af húð- og snyrtivörum. Hún heldur úti vefsíðunni kristinsam.com og instagramreikningnum: @ksam.beauty

                                                            ________

Hugsaðu um húðina þína á hverjum degi. Dagatal hjálpar þér að skipuleggja þig og minnir þig á að gera húðrútínuna þína á hverjum degi. 

Sækja dagatal hér.