Bókabeitan hefur látið gera verkefnapakka fyrir bókina Kamilla vindmylla og leiðinn úr Esjunni. Bókin er önnur bókin um hina hressu Kamillu en nemendur geta notið sögunnar án þess að hafa lesið fyrstu bókina. Textinn er hnyttinn og skemmtilegur og bókin hentar vel fyrir nemendur á miðstigi og fyrir sterkari nemendur í 4. bekk. Verkefnapakkinn er 20 síður. Hann miðar við að bókinni sé skipt upp í fimm lestraskammta. Það er því einfalt að leggja bókina fyrir sem fimm vikna verkefni. Eftir hvern lestrasprett leysa nemendur verkefni. Í öllum fimm verkefnahlutunum er að finna lesskilningsverkefni en auk þeirra eru blönduð verkefni sem reyna á sköpun, orðarýni, upplýsingasöfnun, ritun og tjáningu. Verkefnapakkinn endar á einfaldri bókmenntarýni sem þú getur nýtt sem stökkpall fyrir bókmenntakynningu síðar meir, t.d. á kjörbók síðar um veturinn. Þá gætu nemendur t.d. nýtt sömu spurningar og sett upp slæðusýningu (hver slæða fyrir hvert atriði). Stungið er upp á að nýta ritunarverkefni í 2. hluta sem framsagnarverkefni og hreyfileikni í 3. hluta er hópverkefni en annars ættu nemendur að geta unnið verkefnin sjálfstætt. Höfundur verkefnapakkans er Ása Marin; grunnskólakennari, ljóðskáld og rithöfundur. Bækurnar fást hjá Bókabeitunni og verkefnapakkinn fylgir með ef keyptar eru 5 bækur eða fleiri.