Brásól Brella: Gildrur, gátur og glundroði

4.990 kr

Brásól Brella hefur náð tökum á galdrakröftunum sínum. Eða svona nokkurn veginn. Það kemur nefnilega enn fyrir að hún galdri sig í örlítil vandræði. En núna er Kata systir hennar horfin og Brella kannast ekki við að eiga neinn þátt í því.

Brella heldur af stað í leit að systur sinni. Vísbendingarnar leiða hana gegnum hinn stórhættulega Stóraskóg þar sem heyrst

hefur af varasömum vampíruveiðurum.

TEKST BRELLU AÐ FINNA KÖTU OG STÖÐVA ILL RÁÐABRUGG VEIÐARANNA ÁÐUR EN AÐ VERÐUR UM SEINAN?

Ásrún Magnúsdóttir er með MA-gráðu í enskukennslu og hefur mikinn áhuga á ævintýrum og þjóðsögum. Hún hefur einnig einstakt dálæti á dýrum. Skemmtilegast þykir henni þegar það tvennt blandast saman.