About the Author
Ragnheiður Gestsdóttir has been writing for a long time and is well known for her warm and colorful books. She has had numerous awards for both text and illustration, for instance the Nordic Children’s Book Awards, the Dimmalimm award and Sögustein, IBBY’s children’s book awards.
Ragnheiður Gestsdóttir
Ragnheiður Gestsdóttir fæddist í Reykjavík þann 1. maí 1953. Hún lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1973 og prófi í listasögu frá háskólanum í Árósum 1979. Hún stundaði einnig nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands.
Ragnheiður starfaði sem kennari í nokkrum skólum á höfuðborgarsvæðinu um árabil og var ritstjóri hjá Námsgagnastofnun frá 1990–1996. Hún hefur bæði myndlýst og skrifað bækur fyrir börn og unglinga, en fyrsta bók hennar, Ljósin lifna, kom út árið 1985.
Ragnheiður hefur endursagt og myndlýst þekkt íslensk ævintýri, meðal annars Söguna af Hlina konungssyni. Þá hefur hún skrifað talsvert af kennsluefni.
Unglingasögur hennar hafa vakið mikla athygli og hlaut Ragnheiður Norrænu barnabókaverðlaunin árið 2005 fyrir Sverðberann. Sama bók hlaut Barnabókaverðlaun Menntaráðs Reykjavíkur árið 2004 en Ragnheiður fékk einnig sömu verðlaun fyrir unglingabókina 40 vikur árið 2001 og Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Leik á borði árið 2000. Þá heiðraði IBBY á Íslandi hana fyrir ritstörf með Vorvindum félagsins árið 2005.
2022 hlaut Ragnheiður glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann fyrir skáldsöguna Farangur.