Rambó er týndur

4.990 kr

Kennarinn og karókídrottningin Sandra sinnir unglingum af natni á daginn og stundar kaup og sölu á notuðum húsgögnum á kvöldin. Þegar huggulegur maður blikkar hana um hábjartan dag í Sorpu verður hún strax gagntekin og sannfærð um að hrifningin sé gagnkvæm. Þegar hún kemst að því að smáhundurinn hans er týndur veit Sandra að örlögin hafa talað. Áður en hún veit af er hún gengin til liðs við leitarhópinn og blæs til sóknar í ástarlífinu.

Rambó er týndur er grátbrosleg saga um gömul sár og glataða vináttu en einnig um leitina að ástinni og ógöngurnar sem henni geta fylgt.

Rambó er týndur er fjórða skáldsaga Yrsu Þallar, sem áður hefur getið sér góðan orðstír fyrir vandaðan og glettinn stíl og áhugaverðar og breyskar persónur. Síðasta skáldsaga Yrsu, Strendingar (2020), var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins.