Lestur er sexý - (Blint) stefnumót með bók - 21. október
Sum stefnumót enda með því að þú vakir alla nóttina og þetta gæti verið eitt þeirra.
Eva Dögg, Bókabeitan og L’Atelier Alba bjóða þér á Local 101 í kvöldstund með bókum, sköpun, góðum félagsskap og pínuponsu daðri við hið óþekkta.
Við tökum á móti þér með drykk og léttum veitingum áður en þú velur þér stefnumót kvöldsins. Bækurnar eru innpakkaðar; enginn titill, engin kápa, aðeins nokkrar vísbendingar. Ástarsaga, spenna eða eitthvað sem þú vissir ekki að þig langaði í? Leyfðu forvitninni að ráða. Kannski fellurðu fyrir bók sem þú hefðir aldrei valið sjálf.
Eva leiðir okkur svo í bókamerkjagerð með fallegum efnivið frá L’Atelier Alba. Við leikum okkur með áferð og smáatriði, spjöllum og búum til eitthvað sem fær að fylgja okkur á milli blaðsíðna. Þú þarft ekkert að kunna fyrirfram, bara mæta og njóta.
Í lok kvöldsins opnum við bækurnar saman og sjáum hver fer með hverjum heim. Verður það ást við fyrstu blaðsíðu?
Komdu ein/n eða taktu vin eða vinkonu með. Hvort sem náttborðið þitt er fullt af bókum eða þig langar að finna lestrarlöngunina aftur, þá viljum við hafa þig með. Þú ferð heim með nýja bók, þitt eigið bókamerki og góða ástæðu til að fara aðeins seinna að sofa.
Staður: Local 101 - Ránargata 4a, 101 Reykjavík
Dagsetning: Miðvikudagur 21. október
Tími: Kl. 20:00 - 22:00
Sætafjöldi er takmarkaður.
