Næturdýrin
Systkinin Lúna og Nói vita fátt skemmtilegra en að leika sér saman – líka á nóttunni! Foreldrarnir þurfa hins vegar sinn nætursvefn og örmagna af þreytu leita þau til prófessors Dagbjarts. Með hjálp prófessorsins uppgötva systkinin hið stórskemmtilega draumaland þar sem þau geta hoppað og skoppað í skýjaborgum en samt vaknað úthvíld.
Geisladiskur fylgir bókinni með úrvalslögum í flutningi Ragnheiðar Gröndal og barnakórs.
Höfundar: Bergrún Íris Sævarsdóttir & Ragnheiður Gröndal.
Myndir: Bergrún Íris Sævarsdóttir
Blaðsíðufjöldi: 38