Tarotspil norrænna goðsagna – Byrjendanámskeið - 18. febrúar
Hvenær: 18. febrúar 2026 kl. 18 - 20
Hvar: Bókabeitan - Brautarholt 8, Reykjavík (Stúfholtsmegin)
Í upphafi nýs árs er tilvalið að spá í spilin og læra eitthvað nýtt!
Kristín Ragna Gunnarsdóttir, höfundur Tarotspila norrænna goðsagna, fer yfir spilastokkinn, rýnir í örlagaspilin og lágspilin, veitir innsýn í táknræna merkingu spilanna og segir frá goðsögunni sem liggur að baki hverju spili. Einnig verður farið yfir nokkrar einfaldar lagnir sem þátttakendur geta spreytt sig á að námskeiði loknu 🧡
Innifalið í gjaldinu er vegleg askja með Tarotspilum norrænna goðsagna og handbók og örlítil hressing meðan á námskeiðinu stendur.
Ath! Átt þú Tarotspil norrænna goðsagna en vilt samt taka þátt í námskeiðinu? hafðu samband við okkur á pantanir@bokabeitan.is
Takmarkað pláss er í boði.
