Álfarannsóknin

1.290 kr

Undarlegir hlutir eiga sér stað í sveitinni hans afa!
Það fréttir Baldur kvöldið áður en hann fer austur með pabba sínum og afa. Tæki brotna, kaðlar losna, vinnuvélar bila, smiður segir upp störfum … og þegar Baldur mætir á staðinn gerist fleira furðulegt:

- Það kviknar og slökknar á sjónvarpinu
- Borinn bilar
- Nýi vinurinn er hræddur (sko alveg skíthræddur og neitar að
fara inn í stofu)

Er eitthvað óhreint á sveimi í sveitinni? Og gæti það mögulega tengst álfum? Eru álfar til í alvörunni?
Baldur er ekki alveg viss en nýi vinurinn virðist sannfærður. Með talstöðvum, tommustokk, farsíma, beikoni og upplýsingum frá Bjössa besta skinni þokast rannsóknin áfram og ný vináttubönd verða til.


Höfundur: Benný Sif Ísleifsdóttir 

Blaðsíðufjöldi: 172