Terms of service
Viðskiptaskilmálar
Almennt:
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu www.bokabeitan.is. Hafi skilmálar þessir ekki verið samþykktir við nýskráningu á vefsíðu Bókabeitunnar teljast þeir samþykktir við fyrstu kaup á vöru. „Kaupandi“ er einstaklingur, sem er aðili samnings en stundar ekki viðskipti eða aðra athafnastarfsemi, þ.e. einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi verður að vera a.m.k. 16 ára. „Kaupandi“ getur líka verið fyrirtæki en lög um um þjónustukaup nr. 42/2000 eiga þá við. Þessi lög gilda um réttarstöðu samningsaðila þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir.
Bókabeitan áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, og áskilur sér einnig að breyta verðum eða taka vörur úr sölu fyrirvaralaust. Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann þekki gildandi skilmála Bókabeitunnar. Skilmálarnir eru aðgengilegir á vefsvæði Bókabeitunnar. Hver kaup eru bindandi fyrir kaupanda samkvæmt skilmálum og skilyrðum Bókabeitunnar.
Upplýsingar og verð:
Verð á vefsvæði Bókbeitunnar eða öðru markaðsefni eru birt með virðisaukaskatt. Verð er birt með fyrirvara um innsláttar-, prent- og myndvillur. Verð getur breyst án fyrirvara. Greiðslur fara fram í öruggum greiðslugáttum Straums, Rapyd og Netgíró.
Afhending vöru:
Kaupandi getur valið um að sækja vörur í afgreiðslu fyrirtækisins á opnunartíma skv. vefsíðu eða að fá þær sendar með Póstinum eða Dropp. Sendingartími er áætlaður við kaup og sendingargjald reiknast við kaup. Sendingargjald getur tekið breytingum án fyrirvara. Bókabeitan áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að viðkomandi vara er uppseld, skemmd eða gölluð. Bókabeitan mun upplýsa kaupanda um allt slíkt eins fljótt og kostur er.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur:
Bókabeitan skuldbindur sig til að afhenda kaupanda vöru eða þjónustu fyrir kaupum í samræmi við skilmála þessa og gildandi rétt. Kaupandi getur skilað vöru til Bókabeitunnar innan 14 daga, valið nýja eða fengið hana endurgreidda að fullu. Bókabeitan áskilur sér rétt til að skoða að varan sé í lagi og til að koma í veg fyrir misnotkun á 14 daga skilarétti. Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi. Reikningur eða kvittun fyrir kaupum eru skilyrði fyrir vöruskilum. Ef til endurgreiðslu kemur innan 14 daga frá kaupum, skv. tilmælunum, mun Bókabeitan endurgreiða kaupanda vöruna á sama hátt og viðskiptavinur notaði við greiðslu - þ.e. með bakfærslu á kredit- eða debetkorti, niðurfellingu á Netgíró kröfu eða innlögn á bankareikning.
Uppsögn áskriftar:
Uppsögn áskriftar skal senda með tölvupósti í pantanir@bokabeitan.is. Uppsögn gildir frá uppsagnardegi.
Galli:
Ef vara er gölluð er Bókabeitunni skylt að bjóða kaupanda nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003 á kaupandi rétt á því að fá gallaða vöru bætta ef tilkynning berst okkur innan tveggja mánaða frá því að kaupandi varð var við galla. Bókabeitan mælir með því að kaupandi sendi tölvupóst eða hringi í Bókabeituna sem fyrst frá því að galli uppgötvast. Bókabeitan sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins. Bókabeitan áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð innan 7 daga.
Trúnaður:
Kaupanda er heitið fullum trúnaði er varðar allar upplýsingar sem hann gefur upp við kaup á vöru á síðunni. Upplýsingarnar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Annað:
Bókabeitan áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara skilmála, enda verði kaupanda tilkynnt um það. Útsending nýrra skilmála til kaupanda og/eða birting á vefsíðu Bókabeitunnar telst nægileg tilkynning. Litið er svo á að kaupandi hafi samþykkt breytinguna ef hann kaupir vöru eða þjónustu eftir að tilkynning um breytingu hefur verið gefin út.
Lög og varnarþing:
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Ágreining vegna túlkunar eða framkvæmda skilmála skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.
Gildistími:
Skilmála þessir gilda frá 26. janúar 2024.
Persónuverndarstefna
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
