Villueyjar - kilja

2.990 kr

Á Útsölum stendur aðeins eitt hús: Skólahúsið. Frá því Arilda man eftir sér hefur þessi skóli verið hennar annað heimili. Hún hefur aldrei velt því fyrir sér hvers vegna hann standi á eyju sem annars er í eyði, ekki fyrr en daginn sem hún heldur inn á miðja eyjuna og villist í þokunni.
Eftir það breytist allt.

Smám saman rennur það upp fyrir Arildu að hún getur engum treyst. Hún verður sjálf að leita svara, ekki bara um hryllinginn sem býr á Útsölum heldur einnig um sína eigin fjölskyldu.

Villueyjar er önnur bók Ragnhildar Hólmgeirsdóttur sem hlaut mikið lof fyrir sína fyrstu bók, Koparborgina. Koparborgin hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar en var auk þess tilnefnd til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, auk Fjöruverðlaunanna í sínum flokki.