Tarotspil norrænna goðsagna - Byrjendanámskeið - 11. mars
Hvenær: Miðvikudaginn 11.mars 2026 kl. 18 - 20:15
Hvar: Skrifstofa Bókabeitunnar, Brautarholt 8 - 105 Reykjavík
Kristín Ragna Gunnarsdóttir, höfundur Tarotspila norrænna goðsagna, fer yfir spilastokkinn, rýnir í örlagaspilin og lágspilin, veitir innsýn í táknræna merkingu spilanna og segir frá goðsögunni sem liggur að baki hverju spili. Einnig verður farið yfir nokkrar einfaldar lagnir sem þátttakendur geta spreytt sig á að námskeiði loknu 🧡
Innifalið í gjaldinu er vegleg askja með Tarotspilum norrænna goðsagna og handbók, ásamt léttum veitingum í boði Konungskaffi á meðan á námskeiðinu stendur.
Ath! Átt þú Tarotspil norrænna goðsagna en vilt samt taka þátt í námskeiðinu? hafðu samband við okkur á pantanir@bokabeitan.is
Takmarkað pláss er í boði.
