Fuglabjargið

3.890 kr

Á leynieyju sem stingst upp úr norðurhafi er fuglabjarg. Þar búa dramatískar súlur, hrekkjóttar ritur, slúðrandi æðarfuglar, stressuð hringvíufeðgin, snyrtilegir lundar, hlæjandi haftyrðlar, fúll skarfur og hinn fjölkunnugi hrafn. Í fuglabjarginu býr líka einstakur fugl, hnoðrið, sem ætlar að bjóða okkur í hugarflug um merkilegt og mikilvægt ár í lífi sínu í eyjunni.

Fuglabjargið er bók sem sækir innblástur í lífríki fugla. Fuglabjargið er einnig tónleikverk og er tengill á tónlist verksins innifalinn í bókinni.

Höfundur texta: Birnir Jón Sigurðsson
Myndir: Hallveig Kristín Eiríksdóttir