Eygló Jónsdóttir
Eygló Jónsdóttir er fædd og uppalin í Hafnarfirði en býr í Vogunum og starfar sem framhaldskólakennari við Flensborgarskólann í Hafnarfirði. Hún hún lauk masternámi í ritlist frá Háskóla Íslands og hefur sent frá sér tvær ljóðabækur, barnabók og skrifað fjölda greina í blöð og tímarit. Hún er í ritnefnd tímaritsins Mannúð sem fjallar um frið og mannréttindi.