Jenný K. Kolsöe er fædd á Haðastíg 6 í Reykjavík og það var árið 1952. Hún fæddist í rúmi ömmu sinnar og lengi vel svaf hún í kommóðuskúffu sem var djúpt og stór, sérstaklega fyrir svona lítið barn. Hún var einstaklega hárprúð og þegar hún var fjögurra ára hitti hún Grýlu, sem strauk yfir hárið á henni og hún sturlaðist af hræðslu og reyndi að skríða undir sófann hjá ömmu sinni en hausinn á henni var of stór.
Í dag er Jenný orðin amma, á fjögur barnabörn sem hún hefur sagt sögur frá því þau fæddust.
Og svo kom Tíminn og sagði að nú væri komið að því að festa þessar sögur á blað og leyfa öðrum börnum að heyra um þær, því ekki getur hún sjálf farið um allt og hitt öll börn til að segja þeim sögurnar.
Svo Jenný manaði sig upp og fór og hitti Mörtu og Birgittu hjá Bókabeitunni og þeim leist þannig á sögurnar að þær ákváðu að öll börn ættu að hafa tækifæri til að lesa þær.
Svo Gemlingar og Grislingar, nú er tækifærið að lesa skemmtilega sögu sem heitir: Amma Óþekka og tröllin í fjöllunum.