Uppljóstrarinn

2.490 kr

Uppljóstrarinn er fléttusaga sem hefst í New York upp úr 1960. Vincent Giordano fær inngöngu í hina illræmdu Locatelli mafíu og fær sína eldskírn: að taka uppljóstrara af lífi.
Í Fredrikstad nútímans er auðugasti maður borgarinnar myrtur. Ástæða er til að ætla að hann hafi verið myrtur í auðgunarskyni.
Anton Brekke aðstoðarvarðstjóri hjá rannsóknarlögreglunni er fenginn til að stjórna rannsókn málsins. Hann er óforskammaður, ákafur og orðhvatur,
vinsæll hjá kvenfólki og hefur leynda ástríðu: fjárhættuspil. Með hinn áhugasama lögreglunema Magnus Torp á hælunum
byrjar Anton að velta upp mörgum sögum
sem fléttast saman á óvæntan hátt í lokin. 

Höfundur: Jan-Erik Fjell
Þýðandi: Herdís M.Hübner
Blaðsíðufjöldi: 320