3.490 kr

Einfaldar æfingar fyrir krakka og fullorðna til að kalla fram slökun og innri ró. 

Á hverjum degi þjóta óteljandi hugsanir og tilfinningar í gegnum huga okkar.  Það getur komið sér vel að kunna aðferð til að finna innri frið og ró, til dæmis þegar þú: 

  • ferð að sofa á kvöldin
  • finnur fyrir kvíða
  • undirbýrð þig fyrir próf
  • upplifir reiði
  • vantar meiri einbeitingu
  • vilt finna gleði
  • tekst á við breytingar í lífi þínu

Bókin Ró er byggð á margra ára reynslu Evu Rúnar af því að kenna börnum jóga, slökun og hugleiðslu.

Höfundur: Eva Rún Þorgeirsdóttir
Myndskreytir: Bergrún Íris Sævarsdóttir
Blaðsíðufjöldi: 40