Yrsa Þöll Gylfadóttir
Yrsa Þöll Gylfadóttir er fædd árið 1982 í Reykjavík. Hún útskrifaðist með B.A. gráðu í frönskum bókmenntum og málvísindum frá Sorbonne háskóla í París. Síðar lauk hún meistaraprófi í frönskum fræðum frá Háskóla Íslands, kennsluréttindum á framhaldsskólastigi og prófi frá Leiðsöguskóla Íslands.
Yrsa Þöll skrifar hinar geysivinsælu léttlestrarbækur Bekkurinn minn í samstarfi við myndhöfundinn Iðunni Örnu og eru nú komnar út tíu bækur í seríunni á tveimur erfiðleikastigum. Árið 2025 kom út bókin Jólabókaormurinn, sem Yrsa skrifaði með eiginmanni sínum, Gunnari Theodór Eggertssyni, og sem myndskreytt var af Hafsteini Hafsteinssyni. Í haust kemur svo út fyrsta bók Yrsu fyrir unglinga, Allt í fokki rugli. Yrsa hefur auk þess skrifað fjórar skáldsögur: nýjust þeirra er hin grátbroslega Rambó er týndur (2023).
Yrsa Þöll býr í Reykjavík ásamt eiginmanni sínum, þremur börnum og kettinum Dívu.
