Bekkurinn minn
Bekkurinn minn er bókaflokkur fyrir byrjendur í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan veggja skólans. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.
Yrsa Þöll Gylfadóttir rithöfundur og Iðunn Arna teiknari búa til bækurnar saman.