Allt í rugli!

5.990 kr

This product is unavailable

Sigrún er þrettán að verða fjórtán og er búin að ákveða að hún ætli ekki að vera lúði lengur – sérstaklega ekki eftir að Aníta flutti í götuna.

En ef hún ætlar að verða vinkona Anítu verður ýmislegt að breytast í lífi hennar. Barnalega æskuvinkonan verður að fjúka. Svo verður hún að gera eitthvað í þessari glötuðu fjölskyldu sinni. Af hverju er heimilið þeirra svona subbulegt? Ætti ekki að vera ólöglegt að setja hangikjöt og grænar baunir ofan á pítsu? Og hver fer til Transylvaníu þegar hægt er að fara til Tenerife?

Með hjálp nýju vinkonunnar ræðst hún í verkefnið með ófyrirséðum afleiðingum.

Hér er á ferðinni bráðfyndin og dramatísk saga um unglingsstúlku sem stendur á tímamótum. Yrsa Þöll Gylfadóttir hefur áður skrifað skemmtilegar og áleitnar bækur fyrir börn og fullorðna, meðal annars hinar geysivinsælu léttlestrarbækur Bekkurinn minn.

Höfundur: Yrsa Þöll Gylfadóttir
Myndhöfundur: Bergrún Íris Sævarsdóttir