Allt minnir á þig
VÆNTANLEG UM MIÐJAN MARS!
Eftir að hafa afplánað fimm ára fangelsisdóm snýr Kenna Rowan aftur til bæjarins þar sem allt fór úrskeiðis, í von um að fá að hitta fjögurra ára dóttur sína. En Kenna fær ekki tækifæri til að byggja aftur brýrnar sem hún brenndi því fólkið í lífi dóttur hennar er staðráðið í að halda þeim aðskildum. Sá eini sem hefur ekki lokað alveg á Kennu er Ledger Ward.
Samband Kennu og Ledgers verður sífellt nánara. Ef einhver kemst að því gætu þau bæði glatað því sem skiptir þau mestu máli í lífinu.
Höfundur: Colleen Hoover
Þýðendur: Birgitta Elín Hassell & Marta Hlín Magnadóttir
