Bestu vinir

6.490 kr

This product is unavailable

ARI SKILUR EKKERT HVAÐ ER Í GANGI!
Skólinn er byrjaður aftur, sem er ekki gaman þegar maður á enga vini. Ari ætlar að lifa veturinn af með því að fela sig - en undarlegir hlutir eru að gerast ...
Hrikalega pirrandi stelpa er flutt í næsta hús við afa.
Einhver er staðráðinn í að leggja skólann í rúst.
Og Margrét kennari er allt í einu orðin rosa skrítin.

Hvernig á Ari að fela sig fyrir Kjartani þegar vandræðin virðast elta hann?

FYNDIN SPENNUSAGA UM VINÁTTU. 
HASAR OG HÚMOR!

Eva Rún og Blær hafa búið til fjölmargar barnabækur og kennt krökkum um allt land að semja sögur í Svakalegu sögusmiðjunni.
Þær eru líka bestu vinkonur.

Höfundur: Eva Rún Þorgeirsdóttir
Höfundur: Blær Guðmundsdóttir