Dóttir hafsins - kilja

3.490 kr

Dóttir hafsins: Dulstafir - bók 1

Þegar hún lokaði augunum birtust myndir. Tærir tónar söguðu henni sögur af furðuveröld þar sem myrkrið réð ríkjum, lengst ofan í undirdjúpunum. Elísa tók eitt skref áfram. Svo annað.

Lelena var hvíslað. Elísu krossbrá og hún galopnaði augun. Aftur var hvíslað en í þetta sinn var hún ekki hrædd. Áfram. Án þess að hika hljóp Elísa af stað.

Líf Elísu, sextán ára unglings frá Vestfjörðum, gjörbreytist á einni nóttu þegar hún heyrir tónlist berast frá hafinu. Tónlistin leiðir hana niður í fjöru, ofan í undirdjúpin og að fjólubláu borginni. Elísa dregst inn í háskalega atburðarrás og kemst að því að hún er hluti af spádómi ævafornrar menningar á hafsbotni. Er hún verðug þess að bera titilinn dóttir hafsins.

Höfundur: Kristín Björg Sigurvinsdóttir
Blaðsíðufjöldi: 288

Dóttir hafsins fékk tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2020

Íslensku bókmenntaverðlaunin