Endalokin - Útverðirnir

1.490 kr

Hallgerður Evudóttir er nýflutt til ömmu sinnar í Rökkurhæðum. Hún fer að púsla saman sögusögnum af dularfullum atburðum sem þar eiga að hafa gerst og skilur ekkert í að nokkur þori yfir höfuð að búa á staðnum.

Þegar Hallgerður kemst á slóðir undarlegs safnaðar sem kallar sig Útverði er hún sannfærð um að hún sé búin að finna uppsprettu illskunnar í Rökkurhæðum.

Endalokin er fyrri hluti sjálfstæðs tvíleiks sem slær botninn í bókaflokkinn um krakkana í Rökkurhæðum.

Höfundar: Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir
Blaðsíðufjöldi: 224