Skemmtilegir flokkar

Fyrir alla unga sem aldna
Bókabeitan var stofnuð árið 2011 af Birgittu Elínu Hassell og Mörtu Hlín Magnadóttur.
Í upphafi lagði Bókabeitan áherslu á útgáfu bóka fyrir unglinga og ungmenni. Þegar bókaútgáfan óx og dafnaði jókst flóran og í dag eru gefnar út bækur fyrir alla aldurshópa. Mikið er lagt upp úr vönduðu efni sem er jafnframt spennandi, fyndið og/eða áhugavert.
Bókabeitan gefur út vandaðar bækur undir þrem merkjum:
Töfraland – bækur fyrir yngstu lesendurna
Bókabeitan – skáldsögur fyrir börn og unglinga
Björt bókaútgáfa – ungmennabækur, skáldsögur og handbækur