Aldrei aldrei
Charlize Wynwood og Silas Nash hafa verið bestu vinir síðan þau lærðu að ganga og ástfangin síðan þau voru fjórtán.
En frá og með deginum í dag þekkja þau ekki hvort annað. Fyrsti kossinn, fyrsta rifrildið, augnablikið sem þau urðu ástfangin...allar þessar minningar eru horfnar.
Charlie og Silas þurfa í sameiningu að fina út úr því hvað kom fyrir þau og hvers vegna. Því meira sem þau grafa upp því fleiri spurningar vakna:
Hvað kom upp á milli foreldra þeirra?
Hvað veit spákonan um málið?
Hvers vegna í ósköpunum höfðu þau eiginlega verið par?
Það er ömurlegt að gleyma en það gæti verið verra að muna.
Grípandi saga sem fyrst kom út í þrem hlutum en er hér sameinuð í eina bók.