Þorri og Þura: Tjaldferðalagið

3.390 kr

Sólin skín og álfarnir Þorri og Þura ætla í tjaldferðalag saman. Skyndilega kemur hellidemba en vinirnir finna lausn á því eins og öðru, enda láta þau ekkert stoppa sig í ævintýraleitinni. Þorri og Þura hafa heimsótt leikskólabörn, komið fram á bæjarhátíðum og birst á skjám landsmanna.

Þessir bráðskemmtilegu fjörkálfar eru nú orðnir að litríkum söguhetjum og bjóða lesendum með sér í óvenjulega útilegu.

Höfundar: Agnes Wild og Bergrún Íris