Endalokin - Gjörningaveður

1.490 kr

Eftir þungan vetur er loksins komið að hinni árlegu skíðaferð 9. og 10. bekkjar Rökkurhæðaskóla.
Hæðin tekur á móti krökkunum með glampandi sólk og frábæru skíðafæri – en skjótt skipast veður í lofti.

Óvænt skellur á versta veður í manna minnum.
Sannkallað gjörningaveður. Skíðaskálinn skelfur í rokinu
og sambandslaus við umheiminn.
Svo er bankað …

Í framhaldi hefst lokauppgjör íbúa Rökkurhæða við það sem hefur haldið hverfinu í heljargreipum. Gjörningaveður er beint framhald af bókinni Útverðirnir og jafnframt síðasta bókin í bókaflokknum um krakkana í Rökkurhæðum.

Höfundar: Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir
Blaðsíðufjöldi: 224