261 dagur

890 kr

261 dagur eftir Kristborgu Bóel

„Líkami minn er þungur eins og rennandi blaut lopapeysa. Með þyngsli fyrir hjartanu og næ varla andanum. Líður eins og ég sé með opið sár innvortis. Eins og hjartað í mér sé hakk í Bónus á síðasta söludegi.“

Bókin 261 dagir er byggð á dagbókarskrifum sem aldrei áttu að verða annað en líflína út úr óbærilega sársaukafullu hugarástandi sem höfundur upplifði í kjölfar sambandsslita við seinni barnsföður sinn árið 2015.

Skrifunum er ætlað að opna inn í heim sársauka og erfiðleika sem fylgt geta sambands- og hjúskaparslitum. Þau eru ekki bara saga Kristborgar heldur margra annarra sem slíkt hafa reynt, enda sorgarferlið sambærilegt hvar í heiminum sem er.

„Um leið og ég náði djúpa andanum í fyrsta skipti eftir áfallið vissi ég það; þessa reynslu mína vildi ég nýta mér og öðrum til góðs. Vegferðin mín – allur sársaukinn, reiðin, skilningurinn og vöxturinn, sem ég öðlaðist mátti ekki vera til einskis. Þess vegna og akkúrat þess vegna varð þessi bók til. Vonandi verður hún til að aðstoða einn, samsömun fyrir annan og skilningur á líðan einhvers.”

Blaðsíufjöldi: 416