Andrúmsloft

4,490 kr

This product is unavailable

Joan Goodwin hefur verið gagntekin af stjörnunum frá því hún man eftir sér.

Hún lifir kyrrlátu lífi, kennir stjörnufræði og tekur virkan þátt í uppeldi systurdóttur sinnar.  Þegar hún svarar auglýsingu frá NASA, þar sem í fyrsta sinn er óskað sérstaklega eftir umsóknum vísindakvenna um geimfaraþjálfun hjá stofnuninni, snýst líf hennar á hvolf.
Joan er valin úr þúsundum umsækjenda og hefur þjálfun hjá geimferðastofnuninni. Nú snýst allt um að vera skipuð í áhöfn og verða ein af fáum útvöldum sem fá að fara út í geim. Hjá NASA kynnist hún fólki sem verður henni fljótt eins og önnur fjölskylda: flugmönnunum Hank
og Griff, hinni sérvitru Lydiu, Donnu með gullhjartað og Vanessu Ford, flugvélaverkfræðingnum heillandi sem vekur með Joan alveg nýjar tilfinningar. Saman tekst hópurinn á við krefjandi verkefni og fetar ókannaðar slóðir, bæði hið innra og ytra. Joan virðist hafa fengið allt sem hana dreymir um.

Þar til í desember 1984, í leiðangri STS-LR9, þegar hið óhugsandi gerist.

Andrúmsloft er saga af óbilandi metnaði og dirfsku, af fólki sem þorir að elta drauma sína og hvernig það tekst á við það þegar draumurinn breytist í martröð. Umfram allt er hún hrífandi ástarsaga, eins og Taylor Jenkins Reid einni er lagið.

Þýðandi: Sunna Dís Másdóttir
Blaðsíðufjöldi: 400