DómsDagur
Blóðþyrstu mannæturnar Dagur og Ylfa eru á flótta undan Interpol ásamt læknanemanum Inga Birni. Þegar hungrið vaknar er aðeins ein leið til þess að seðja það! Flóttinn verður að blóði drifinni Evrópureisu með viðkomu í líkbrennslu í Stuttgart, útsýnisturni í Svartaskógi og baðhúsi í Búdapest.
Varúð! Bókin inniheldur blóð og innyfli en einnig erótík og blauta kossa í formi trylltra teikninga eftir Simma Breiðfjörð. Lestu líka Veikindadag, Nammidag og Skuldadag – en hafðu í huga að bækurnar um Dag og Ylfu eru alls ekki fyrir viðkvæma!
Höfundur: Bergrún Íris Sævarsdóttir
Myndhöfundur: Sigmundur B. Þorgeirsson
