Sólbjört Valentína - tvær bækur

1.290 kr

Þrælskemmtilegar bækur um Sólbjörtu Valentínu, Nóa bróður hennar og Húsið þeirra. Húsið með stórum staf af því það er svo sannarlega ein af persónum bókarinnar.

Sólbjört Valentína: Um frumskógarfugla og konunglegar nærbuxur
Þegar Húsið sem  Sólbjört Valentína keypti fyrir vasapeningana sína er í góðu skapi eru gluggatjöldin bleik, plönturnar blómstra og úr krönunum rennur bananamjólk. Í dag er Húsið hinsvegar í virkilega vondu skapi og þess vegna er allt þakið ryki og úr krönunum kemur bara edik eða gallsúr mjólk.

Húsið vill fána og engan venjulegan þjóðfána heldur fána úr silkimjúkum, konunglegum nærbuxum.

Sólbjört Valentína verður að taka til sinna ráða því annars hendir húsið fjölskyldunni á götuna!

Sólbjört Valentína: Um Freyðiböð og dansandi hjólaskauta
Hið háæruverðuga Hús er einmana því sumarfríinu er lokið og Sólbjört, Nói og Amír þurfa að fara í skólann. Húsið ákveður því að breyta sér í skóla en tekst að „týna“ Helenu, kennara barnanna.

Sólbjört fer inn á baðherbergi að leita að Helenu en endar í einni fjölmennustu borg í heimi – New York.

Hvernig í ósköpunum á hún að fara að því að finna Helenu í öllum þessum mannfjölda?

Höfundur: Irmgaard Kramer 
Þýðandi: Herdís M. Hübner