Vinkonur: Ráðgátur 2 - Lygasögur?

5,290 kr

Daginn sem Lukka Maja byrjar í skólanum er svolitlu stolið úr skólatösku. Það hafði enginn komið nálægt töskunni nema Emma og Lukka Maja og Lukka Maja er ásökuð um þjófnaðinn. Emma trúir Lukku Maju en er hún eins saklaus og hún segist vera? Stuttu seinna er framið skemmdarverk í skólanum og aftur beinast spjótin að Lukku Maju. 

Emma, Jósefína og Amalía eru staðráðnar í að leysa gátuna af því að einhver er að segja ósatt … Finna stelpurnar sökudólginn áður en Lukka Maja verður rekin úr skólanum?

Eða er Lukka Maja kannski sú sem er að ljúga?

Höfundur: Sara Ejersbo
Þýðandi: Ingibjörg Valsdóttir

Blaðsíðufjöldi: 144