Bekkurinn minn 5: Varúlfurinn

3.490 kr

Varúlfurinn fjallar um Leonoru og orðróminn um varúlfinn í skólanum. Er Héðinn húsvörður í alvörunni varúlfur sem er læstur inni í kompu þegar myrkrið skellur á?
Daginn fyrir hrekkjavökuna komast Leonora og Ragnar til botns í málinu.

Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan veggja skólans. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.

Höfundur texta: Yrsa Þöll Gylfadóttir
Höfundur mynda: Iðunn Arna
Blaðsíðufjöldi: 62