Kristín Ragna Gunnarsdóttir

Úlfur og Edda - Drekaaugun

Æsispennandi fjölskyldusaga!

Amma Edda er stungin af, sökuð um að hafa stolið forngrip af Þjóðminjasafni Íslands. Úlfur og Edda reka slóð hennar að göngunum undir Skálholti og leita hennar í goðheimum. Þar lenda þau í miklum ævintýrum, kynnast breyskum persónum goðsagnanna og takast á við forna fjendur á leið sinni heim aftur.

Bókin er ríkulega myndskreytt og kjörin fyrir lestrahesta.

Höfundur og myndskreytir: Kristín Ragna Gunnarsdóttir
Blaðsíðufjöldi: 217