Raunverulegt líf Guðbjargar Tómasdóttur
Ljóðskáldið Guðbjörg Tómasdóttir, nú fimmtíu og fimm ára, hefur í gegnum árin skrifað niður sínar eigin minningar og hugrenningar. Við upprifjun á þessum skrifum tekst hún á við líf sitt og persónu. Hvernig sambandi hennar við fólkið í kringum hana var háttað. Hvernig hún tókst á við samband mannsins síns við ungan nemanda hans. Hversu upptekin hún var við að halda öðru fólki frá sannleikanum um líf hennar og líðan.
Minningarnar taka óvænta stefnu og varpa jafnframt nýju ljósi á fortíðina. Saga um raunverulegt líf og sambönd. Saga um raunveruleikann eins og hann birtist öðrum.
Saga um sögð og ósögð orð.
Höfundur: Þórarinn Örn Þrándarson
Blaðsíðufjöldi: 217