Traustabrestir

7.490 kr

This product is unavailable

„Þetta er í fyrsta skipti sem ég fer í jarðarför. Ég er ekki nema fimmtán ára gömul svo það er svo sem ekkert skrýtið að ég hafi aldrei þurft að ganga í gegnum þetta áður. Við nemum staðar við tröppurnar innst í kirkjunni og virðum kistuna fyrir okkur. Kistuna hans pabba.“

Árið 1961 leyfir hin sextán ára hlédræga Ragna ungum og myndarlegum pilti, Oddi, að leiða sig út á dansgólfið. Ástin blómstrar og unga parið leggur hamingjusamt af stað út í tilveruna, fer að búa og byggja upp fjölskyldu. En lífið fylgir ekki alltaf fyrirframgefnum uppskriftum. 

Alvarleg veikindi setja strik í reikninginn og Ragna þarf að takast á við mun flóknari og stærri áskoranir en hún hafði nokkurn tímann gert ráð fyrir.

Traustabrestir er sannsöguleg skáldævisaga þar sem Sigurrós Jóna, dóttir Rögnu og Odds, segir frá lífi foreldra sinna auk þess að gefa innlit í eigin minningar frá unglingsárunum og sín fyrstu kynni af sorg og missi.

Höfundur: Sigurrós Jóna Oddsdóttir